Bifröst University
Hvernig getur mannauðsstjórnun stuðlað að betri aðlögun erlends starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar var athuga hvað mannauðsstjórnendur geti gert til þess að stuðla að betri aðlögun erlends starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði. Síðustu ár hefur útlendingum fjölgað gríðarlega hérlendis en einnig hefur mannauðsstjórnun þróast mikið og er orðin mikilvægur þáttur fyrirtækja. Að vera með fjölbreytt starfsfólk á vinnustað getur verið mjög krefjandi en einnig mjög skemmtilegt og gefandi. Það er gaman að kynnast mismunandi menningu og hefðum en einnig þarfnast það mikillar vinnu og þolinmæði. Fyrir erlenda starfsfólkið er þetta einnig mjög mikil áskorun; læra nýtt tungumál, kynnast íslensku vinnuumhverfi, vita öll réttindi og lög og kynnast nýju fólki. Gerðar voru tvenns konar rannsóknir, eigindleg og megindleg, rætt var við fimm stjórnendur, þrjá erlenda starfsmenn ásamt spurningarkönnun þar sem 74 erlendir starfsmenn tóku þátt. Allt var þetta nýtt til þess að skoða hvernig hægt er að aðstoða erlent starfsfólk við aðlögun hér á landi. Út frá niðurstöðum má sjá að tungumálið er mikilvægasti þáttur aðlögunar, það hjálpar erlendu fólki mjög mikið að skilja tungumálið hvort sem það er í vinnu eða daglegu lífi. Það var bæði talað mikið um íslenskunámskeið hjá mannauðsstjórunum sem og erlenda starfsfólkinu sjálfu. Starfsfólkið vill sjá fleiri fyrirtæki bjóða upp á námskeið á meðan stjórnendur vilja sjá betri þátttöku þegar námskeiðin eru í boði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Karolina Konieczna 2000-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51000
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51000