Abstract
dc:description.abstractGæðamál og gæðastjórnun verða sífellt mikilvægari á öllum sviðum samfélagsins. Við gerum auknar kröfur til gæða þeirrar vöru sem við kaupum eða þeirrar þjónustu sem við fáum. Skoðanir á því hvernig rekstri hins opinbera er háttað er þar engin undantekning. Öll höfum við séð fréttir af því með hvaða hætti lögreglan sinnir sínu hlutverki og margir hafa skoðun á því hvernig hún starfar. Þessi rannsókn snýr að því að kanna afstöðu æðstu stjórnenda lögreglunnar á Íslandi til innleiðingar á gæðakerfum. Tekin voru viðtöl við þrjá af níu lögreglustjórum lögregluembætta sem misjöfn eru að umfangi til að endurspegla öll embættin. Einnig var tekið viðtal við sérfræðing í innleiðingu gæðakerfa og rekstri gæðastjórnunarkerfa til að fá það sjónarhorn með í rannsóknina. Fræðilegt samhengi varðandi stöðuna eins og hún kemur fram í viðtölum viðmælenda rannsóknarinnar var borin saman við hugmyndir um gæðastjórnun og gæðamarkmið. Stuðst var við hugmyndir úr Gæðahandbók Jurans og aðrar fræðigreinar til að meta stöðuna í gæðamálum lögreglunnar og hvað er mikilvægt að gera til að auka gæðavitund og þekkingu á störfum lögreglunnar. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa góða mynd af stöðu gæðamála innan lögreglunnar og sýna að mikið hefur áunnist við að auka gæði þjónustunnar. Reglulega eru framkvæmdar þjónustukannanir og þær nýttar til að bæta verklag og gæði hennar. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna jákvæða afstöðu viðmælenda rannsóknarinnar til innleiðingar gæðastjórnunarkerfis á grunni ISO 9001:2015 ef fjármagn til verkefnisins er tryggt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Björn Ingi Jónsson 1968-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49207
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49207