Back to results

Bifröst University

Fjárfestar og fasteignamarkaður. Hvert er hlutfall fjárfesta á fasteignamarkaði og möguleg áhrif þeirra.

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er íslenskur fasteignamarkaður skoðaður með sérstaka áherslu á hlutverk fjárfesta og áhrif þeirra á markaðinn. Rannsóknarspurningin er: „Hvert er hlutfall fjárfesta á fasteignamarkaði og möguleg áhrif þeirra? “ Til að svara þessari spurningu voru notuð bæði megindleg og eigindleg gögn. Opinber gögn frá HMS, Hagstofu Íslands og Seðlabanka Íslands voru greind til að varpa ljósi á eignarhald á íbúðum og þróun markaðarins. Auk þess var lögð könnun fyrir fasteignasala til að fá innsýn í upplifun þeirra af fjárfestum og áhrifum sem þeir töldu þá hafa á íbúðamarkaðinn. Fasteignasalar telja fjárfesta oft hafa forskot vegna greiðari aðgangs að fjármagni, sem getur torveldað einstaklingum og fjölskyldum að eignast húsnæði. Þetta hefur leitt til aukinnar umræðu um áhrif fjárfesta á fasteignaverð og aðgengi. Rannsóknin rýnir í fjármálavæðingu húsnæðismarkaðar. Niðurstöður sýna að fjárfestar, bæði einstaklingar og lögaðilar, eiga sífellt stærri hluta fasteigna. Hlutfall einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð hefur vaxið, á meðan hlutfall þeirra sem eiga eina íbúð sem þau búa í hefur minnkað. Leigufélög og önnur hagnaðardrifin fyrirtæki eru einnig í auknum mæli áberandi á markaðnum. Rannsóknin staðfestir fyrri rannsóknir sem sýna að aukin þátttaka fjárfesta á fasteignamarkaði getur skapað ójafnvægi á milli framboðs og eftirspurnar, sem hefur bæði efnahagsleg og félagsleg áhrif. Rannsóknin gefur vonandi innsýn í þróun fasteignamarkaðarins og bendir til að þörf sé á stefnumótun til að tryggja jafnvægi á milli fjárfestinga og hagsmuna almennings. Niðurstöðurnar geta veita grunn til áframhaldandi umræðu og rannsókna á þessu sviði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hlynur Bæringsson 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49167
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49167

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hlynur Bæringsson 1982-. Fjárfestar og fasteignamarkaður. Hvert er hlutfall fjárfesta á fasteignamarkaði og möguleg áhrif þeirra.. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49167