Back to results

Bifröst University

Vara eða vörumerki

Abstract

dc:description.abstract

Markmið og viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna hvort vörumerkjatryggð ríkir á snyrtivörumarkaði á Íslandi eða hvort neytendur séu tryggari vörunni sjálfri. Leitast var eftir svari við spurningunni: Hvort eru neytendur tryggir vörumerki eða vöru á íslenskum snyrtivörumarkaði? Við framkvæmd þessarar rannnsóknar var notast við bæði eigindlega og megindlega rannsókn til að safna upplýsingum um hvort íslenskir neytendur væru tryggir vörumerkjum eða vörum. Megindlega rannsóknin var í formi spurningalista sem lagður var fyrir neytendur og snéru spurningarnar að því hvort neytendur væru tryggir ákveðnum vörum í vöruflokkum meira en öðrum og einnig að vörumerkjatryggð. Í eingindlegu rannsókninni voru tekin voru viðtöl við sölustjóra og vörumerkjastjóra sem starfa hjá snyrtivöruheildsölum, í von um að þau gætu varpað skýru ljósi á vörumerkjatryggð á þessum markaði. Spurningalistinn var hálfopinn. Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar voru þær að neytendur er almennt tryggir vörumerkjum á snyrtivörumarkaði fremur en vöru. Aftur á móti voru einnig niðurstöður þessarar rannsóknar þær að eftir því sem varan er flóknari og þarfnast leiðbeininga um virkni og fleiri þætti, því líklegri eru neytendur til að vera tryggir vörunni. Neytendum virðist standa meira á sama varðandi vörumerki einfaldra vara á borð við varaliti, augnblýanta, naglaklippur og því um líkt og virðist val á slíkum vörum fara meira efir smekk hvers og eins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Brynja Ragnarsdóttir 1994-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46324
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46324

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Brynja Ragnarsdóttir 1994-. Vara eða vörumerki. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46324