Abstract
dc:description.abstractMarkmið og viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna hvort vörumerkjatryggð ríkir á snyrtivörumarkaði á Íslandi eða hvort neytendur séu tryggari vörunni sjálfri. Leitast var eftir svari við spurningunni: Hvort eru neytendur tryggir vörumerki eða vöru á íslenskum snyrtivörumarkaði? Við framkvæmd þessarar rannnsóknar var notast við bæði eigindlega og megindlega rannsókn til að safna upplýsingum um hvort íslenskir neytendur væru tryggir vörumerkjum eða vörum. Megindlega rannsóknin var í formi spurningalista sem lagður var fyrir neytendur og snéru spurningarnar að því hvort neytendur væru tryggir ákveðnum vörum í vöruflokkum meira en öðrum og einnig að vörumerkjatryggð. Í eingindlegu rannsókninni voru tekin voru viðtöl við sölustjóra og vörumerkjastjóra sem starfa hjá snyrtivöruheildsölum, í von um að þau gætu varpað skýru ljósi á vörumerkjatryggð á þessum markaði. Spurningalistinn var hálfopinn. Helstu niðurstöður þessarar rannsóknar voru þær að neytendur er almennt tryggir vörumerkjum á snyrtivörumarkaði fremur en vöru. Aftur á móti voru einnig niðurstöður þessarar rannsóknar þær að eftir því sem varan er flóknari og þarfnast leiðbeininga um virkni og fleiri þætti, því líklegri eru neytendur til að vera tryggir vörunni. Neytendum virðist standa meira á sama varðandi vörumerki einfaldra vara á borð við varaliti, augnblýanta, naglaklippur og því um líkt og virðist val á slíkum vörum fara meira efir smekk hvers og eins.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Brynja Ragnarsdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46324
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46324