Abstract
dc:description.abstractUpplýsingatækni er mikilvægur þáttur í atvinnulífi og mótar skipulagsheildir og starfsumhverfi þeirra. Innan upplýsingatækni starfar fjölbreyttur hópur þekkingarstarfsmanna og er vaxandi eftirspurn eftir fjölbreyttu vinnuafli. Mikilvægt er að áherslur í stjórnun og forystu skapi menningu þar sem starfsmaður finnur að hann fellur inn í teymi, er ánægður og vinnur út frá styrkleikum sínum. Fáar rannsóknir eru til hér á landi um stjórnun á þessu sviði og var ákveðið að gera eigindlega rannsókn með viðtölum við stjórnendur í upplýsingatækni til að fá djúpa innsýn í reynslu þeirra og áherslur. Gögn voru greind með þemagreiningu og fram komu þrjú þemu sem lýsa persónueinkennum og áherslum viðmælenda í stjórnun ásamt fjölbreytileika starfsmanna: 1) Einkenni stjórnenda, 2) Áherslur stjórnenda og 3) Fjölbreytileiki. Niðurstöður sýna að stjórnendur í upplýsingatækni líta á sig sem hreinskilna, kappsama, nákvæma og sanngjarna og nýta aðferðir sem tengjast umbreytingaforystu og þjónandi forystu. Fram kemur að starfsmenn hafa mismunandi persónueinkenni og vilja axla ábyrgð og kalla sjálfir eftir stuðningi stjórnenda. Niðurstöður veita vísbendingar um að styrkja þurfi almenna upplýsingagjöf stjórnenda ásamt því að styrkja menntun þeirra í stjórnun. Þá benda niðurstöður til þess að efla þurfi leiðtogastíla sem styðja við inngildingu og menningu skipulagsheilda þar sem hugað er að hvötum fjölbreytts hóps úthverfra og innhverfra einstaklinga með stuðningi, jafningjabrag og innihaldsríku starfsumhverfi. Niðurstöður rannsóknarinnar geta verið framlag til þekkingar á sviði stjórnunar í upplýsingatækni miðað við áherslur stjórnenda og fjölbreytileika starfsfólks. Mikilvægt að rannsaka efnið enn frekar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ragnar Már Magnússon 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45202
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45202