Back to results

Bifröst University

,,Eftir höfðinu dansa limirnir": vinnustaðamenning meðal lögreglumanna í almennri deild embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum

Abstract

dc:description.abstract

Atvinnurekendur eru sífellt að átta sig betur á mikilvægi vinnustaðarmenningar og að sjá hag sinn í að rækta hana því það hefur sýnt sig að sú vinna skilar sér í bættum hag fyrirtækisins. Rannsóknir sýna að vinnustaðamenning lögreglunnar er um margt ólík vinnustaðamenningu annarra fyrirtækja vegna eðli starfsins en það hefur verið talið eitt mest streituvaldandi starf í heimi. Það er margt sem getur haft áhrif á vinnustaðamenningu og því er mikilvægt að reyna að kortleggja hvaða þættir það eru svo hægt sé að ýta undir þá sem hafa jákvæð áhrif, draga úr þeim sem hafa neikvæð áhrif og leita leiða til úrbóta ef einhverju er ábótavant. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða vinnustaðamenningu almennu deildar embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum, annars vegar hvað einkenni hana og hins vegar hvað hafi áhrif á hana. Um var að ræða tilvikarannsókn þar sem gögnum var safnað með eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru hálf-opin viðtöl við 14 lögreglumenn. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að það sem einna helst einkennir vinnustaðamenninguna sé gleði, léttleiki og húmor, liðsheild og traust, baktal og slúður. Það sem hefur svo hvað mest áhrif á vinnustaðamenninguna eru stjórnendur og þá helst stjórnendur vaktanna, liðsheild þeirra, skilningur þeirra og áhugi á starfi lögreglumanna, streita, álag og fjöldi ófaglærðra lögreglumanna. Niðurstöðurnar gefa góða mynd af vinnustaðamenningunni, hvað það er sem einkennir hana og hvað það er sem hefur mestu áhrifin á hana.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Þórdís Þorgilsdóttir 1987-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42574
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42574

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Þórdís Þorgilsdóttir 1987-. ,,Eftir höfðinu dansa limirnir": vinnustaðamenning meðal lögreglumanna í almennri deild embættis lögreglustjórans á Suðurnesjum. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42574