Bifröst University
"Það er ekki nóg að setja bara fólk við stýrið og svo kemur í ljós hvernig það gengur“ : hvernig getur "Lean" hugmyndafræðin og viðskiptaferlastjórnun hjálpað skipulagsheild að ná árangri í flóknu viðskiptaumhverfi?
Abstract
dc:description.abstractMeginmarkmið rannsóknarinnar er að öðlast dýpri skilning á ferlum innan velferðarsviðs Öryggismiðstöðvar Íslands og skoða hvernig Lean hugmyndafræðin getur hjálpað skipulagsheild að ná árangri í flóknu viðskiptaumhverfi í kjölfar fjórðu iðnbyltingar. Til hliðsjónar var stuðst við kortlagningu viðskiptaferla samkvæmt BPMN 2.0 staðlinum og hvernig hún getur hjálpað við að innleiða sjálfstæð vinnubrögð og einfaldað ferla. Ætlunin er að rannsóknin muni nýtast stjórnendum sem starfa í verslunar- og þjónustugeiranum og vilja innleiða sjálfstæð vinnubrögð, einfalda ferla og nýta tæknina til að bæta yfirsýn yfir stöðu verkefna hverju sinni. Í rannsókninni er leitað svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvernig getur Lean hugmyndafræðin og viðskiptaferlastjórnun hjálpað skipulagsheild að ná árangri í flóknu viðskiptaumhverfi? Settar voru fram tvær undirspurningar: • Hvaða aðferðir eru bestar til að innleiða Lean hugarfar meðal stjórnenda og starfsfólks? • Hvernig geta stjórnendur nýtt sér viðskiptaferlastjórnun til að innleiða sjálfstæð vinnubrögð og einfaldað ferla? Rannsóknin byggir á eigindlegri nálgun og til að svara rannsóknarspurningunni var stuðst við tilfellarannsókn (e. case studies) sem hentar vel til að kryfja flókin tilfelli í fyrirtæki og dýpka þannig skilning á tengslum á milli breyta. Tekin voru viðtöl við fjórtán starfsmenn frá mismunandi deildum fyrirtækisins. Tilgangurinn er að skoða hvernig Lean hugmyndafræðin getur komið að notum í flóknu viðskiptaumhverfi til að minnka sóun, ná fram hagræðingu og jafnframt byggja upp góða vinnustaðamenningu. Niðurstöður benda sterklega til þess að það að beita Lean hugmyndafræðinni meðfram kortlagningu viðskiptaferla geti hjálpað skipulagsheild að bæta árangur, auka skilvirkni og lágmarka kostnað. Kortlagning á viðskiptaferlum getur skilað sjálfstæðum vinnubrögðum og bætt yfirsýn yfir stöðu verkefna með því að gera ferilinn miðlægan og einnig getur hún stutt við framtíðarsýn fyrirtækisins. Viðmælendur höfðu skilning á því hvers vegna málin stoppa sem er fyrsta skrefið í því langa ferðalagi að uppræta sóun innan fyrirtækisins og ná fram meiri hagræðingu. Rannsakandi vonast til þess að rannsóknarverkefnið verði áhugaverð viðbót við þekkingu á hugmyndafræði Lean og aðferðafræði viðskiptaferlastjórnunar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Stefán Esekiel Hafsteinsson 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/40563
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/40563