Back to results

Bifröst University

Fjármálalæsi grunnskólabarna : hver eru hæfni, viðhorf, og menntun kennara til kennslu í fjármálalæsi barna

Abstract

dc:description.abstract

Í þessu verkefni var sjónum beint að viðhorfi, hæfni og menntun þeirra sem sinna kennslu í fjármálalæsi barna. Rannsakað var hver menntun þeirra sem sinna kennslu á öllum stigum grunnskóla er ásamt því hver hæfni og viðhorf þeirra til viðfangsefnisins séu. Við rannsóknina var stuðst við megindlega rannsóknaraðferð. Spurningakönnun var send á alla stjórnendur grunnskóla landsins þar sem óskað var eftir að þeir áframsendu krækju á starfsfólk sitt. Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að svara og var höfð að leiðarljósi við framkvæmd rannsóknarinnar var: Hver eru hæfni, viðhorf og menntun kennara til kennslu í fjármálalæsi barna? Rannsóknin byggir á viðeigandi fræðigrunni þar sem fjallað er meðal annars um aðalnámskrá, námsefni, stafræna tækni, fjármálalæsi hér á landi og á alþjóðavísu. Einnig er fjallað um fyrri rannsóknir og skýrslur sem gerðar hafa verið um viðfangsefnið. Niðurstöður fyrri rannsókna og skýrslna sem gerðar hafa verið voru megininntak við gerð megindlegu spurningakönnunarinnar. Helstu niðurstöður eru þær að meirihluti kennara í grunnskólum hefur hlotið kennaramenntun en fáir hafa sótt sér námskeið í fjármálalæsi og lítið sem ekkert er í boði um slíka endurmenntun. Styðja þarf við kennara til að veita þeim öryggi til að sinna kennslu í fjármálalæsi. Viljinn og þörfin við að sinna kennslu á viðfangsefninu er fyrir hendi á öllum grunnskólastigum. Kennarar telja sig hins vegar ekki vera nægilega vel undirbúna til að kenna viðfangsefnið efnislega en telja þekkingu sína og getu til að sinna kennslu hvað kennslufræði varðar vera betri. Kennarar telja sig ekki hafa góða þekkingu á því kennsluefni sem í boði er og myndu nýta sér smáforrit um fjármálalæsi sér til stuðnings við kennslu á viðfangsefninu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórdís Lilja Eiríksdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40549
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40549

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórdís Lilja Eiríksdóttir 1981-. Fjármálalæsi grunnskólabarna : hver eru hæfni, viðhorf, og menntun kennara til kennslu í fjármálalæsi barna. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40549