Bifröst University
Leiðtoginn og sjálfbærni : innleiðing á sjálfbærni hjá fyrirtækjum og hlutverk leiðtoga í því ferli
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar rannsóknar er að öðlast innsýn og upplýsingar um það hverju fyrirtæki þurfa að huga að við innleiðingu á sjálfbærni í kjarnastarfsemi sína og hvert hlutverk leiðtoga sé í því ferli. Rannsakandi tók viðtöl við níu viðmælendur frá átta fyrirtækjum sem hafa verið áberandi í samfélagsumræðunni um sjálfbærni og hefur vegnað vel við innleiðingu á sjálfbærni í kjarnastarfsemi sinni. Hálfopin viðtöl voru tekin við leiðtoga eða stjórnendur þessara fyrirtækja sem hafa tekið þátt í eða átt frumkvæði að því að innleiða sjálfbærni í starfsemi fyrirtækisins. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós þrjá meginþætti sem fyrirtæki þurfa að huga að svo innleiðing á sjálfbærni nái til kjarnastarfseminnar. Þessa þrjá meginþætti; leiðtoginn, stefnumótun, mælitæki og leiðbeiningar þurfa fyrirtæki að hafa í huga í vegferð sinni að sjálfbærni. Fyrirtæki þurfa að hafa fullan stuðning frá stjórnendum, tilgangur fyritækisins þarf að vera að bæta samfélagið og taka ábyrgð á áhrifum sínum á umhverfið nær og fjær. Stefnumiðað árangursmat hefur reynst fyrirtækjum vel í að innleiða sjálfbærnistefnu í rekstur sinn en þar mætast langtíma sjálfbærnimarkmið og skammtíma efnahagsleg markmið. Sjálfbærnimarkmið verða að vera mælanleg og umbuna þarf góða frammistöðu. Leiðtogar fyrirtækja eiga stóran þátt í að leiða fyrirtæki í átt að sjálfbærni og skapa fyrirtækjamenningu sem styður við sjálfbæra viðskiptahætti. Leiðtoginn verður að skilgreina, kenna og leiðbeina við innleiðingu stefnunnar og tengja hana við siðferðileg og mannleg sjónarmið. Stefnuna verður að vera hægt að búta niður svo hvert starfssvið geti aðlagað sig að stefnunni. Fram komu ýmis tækifæri sem opnuðust fyrirtækjum sem huga að sjálfbærni í öllum ferlum. Má þar nefna betri nýtingu afurða, meiri framleiðni, jákvæða umfjöllun og aukinn áhuga fjárfesta. Jafnframt kom fram að viðmælendur töldu að þörf væri á meiri stuðningi, hvötum og utanumhaldi frá stjórnvöldum í formi skattaívilnana og styrkja. Þar sem sjálfbærnimarkmið eru langtímamarkmið en hefðbundin viðskiptamódel hafa skammtímasjónarmið er þörf á nýjum viðskiptamódelum sem brúa bilið á milli skammtímahagnaðarvonar fjárfesta og langtímasjálfbærnimarkmiða.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásta Kristín Guðmundsdóttir 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/39582
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/39582