Bifröst University
"Það er ekkert öllum gefið að vera yfirmenn" : áhrifaþættir og birtingamyndir álags meðal stjórnenda í ferðaþjónustu
Abstract
dc:description.abstractRannsóknir hafa sýnt fram á hvernig stjórnendur standa frammi fyrir miklum áskorunum og því er vinnuálag þeirra mikið. Álagið tengist aðallega stjórnunar og rekstarlegri ábyrgð þeirra eins og samskiptum við starfsfólk og eigendur sem geta verið mjög krefjandi en helstu birtingamyndir álags eru oftast streita og önnur veikindi. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða helstu áhrifaþætti og birtingarmyndir álags meðal stjórnenda í íslenskri ferðaþjónustu. Rannsóknin var eigindleg viðtalsrannsókn þar sem tekin voru viðtöl við átta stjórnendur í ferðaþjónustu. Leitast er eftir því að skilja upplifun og reynslu viðmælenda af vinnuálagi og hvaða áhrif vinnuálagið hafi á þá. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að helsta álag á stjórnendur er það sem snýr að fjárhagslegri ábyrgð þeirra sem stjórnendur. Einnig gefa niðurstöður til kynna að stjórnendur upplifi samskipti oft sem krefjandi, bæði við starfsmenn og eigendur eða aðra hagsmunaðila. Stjórnendur upplifa að vinnudagarnir eru mis krefjandi. Dagarnir eru ólíkir, ófyrirsjáanlegar aðstæður koma oft upp sem getur haft áhrif á svefn og heilsu þeirra og jafnvel samveru með fjölskyldunni. Hugtök: Stjórnendur, Ferðaþjónusta, Áhrifaþættir álags, Birtingamyndir álags
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Margrét Aðalbjörg Blængsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/35047
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/35047