Back to results

Bifröst University

Sérstaða Toyota : viðhorf til starfsumhverfis Toyota á Íslandi, stöðugar umbætur og þjónandi forysta

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknir hafa sýnt að stöðugar umbætur bæta rekstur fyrirtækja sé vel að þeim staðið og þegar starfsaðstæður, áherslur stjórnenda og fyrirtækjamenning fela í sér mannlega nálgun, valdeflingu, eflingu sjálfstrausts og áherslu á ábyrgð hvers og eins sem styður við árangur og skapar vellíðan og starfsánægju. Vísbendingar eru um að slíkar áherslur og fyrirtækjamenning tengist að hluta til við hugmyndafræði þjónandi forystu en fáar rannsóknir liggja fyrir um þessi tengsl. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna viðhorf starfsmanna Toyota á Íslandi til starfsumhverfis á vinnustað sínum og að kanna hvort viðhorfin tengist hugmyndafræði þjónandi forystu. Gerð var eigindleg rannsókn sem fólst í því að taka viðtöl við starfsmenn fyrirtækisins og rannsóknargögn greind þar sem fram komu þrjú meginþemu. Fyrsta þema fjallar um samband fyrirtækisins við starfsfólk sitt, annað þema lýsir hvernig starfsfólk fyrirtækisins horfir á og starfar í þágu viðskiptavina og í þriðja þema koma fram viðhorf um menninguna sem drífur starfsemina áfram. Niðurstöður gefa til kynna að mannauðurinn er fyrirtækinu mikilvægur og að viðskiptavinurinn og þjónusta í hans garð er sömuleiðis áhersluatriði. Grunnur árangursins felst í nálgun og menningu sem einkennist af samvinnu, uppbyggilegum samskiptum, nýsköpun og útbreiðslu þekkingar. Niðurstöður gefa einnig til kynna að starfsumhverfi stöðugra umbóta hjá Toyota hér á landi og þjónandi forystu hafi nokkur sameiginleg einkenni og má þar nefna valdeflingu, traust, ábyrgðarskyldu og opið samskiptaflæði. Niðurstöður benda einnig til þess að þjónandi forysta geti stuðlað að fyrirtækjamenningu sem styður árangur stöðugra umbóta og eru þær niðurstöður í takt við fyrri rannsóknir. Lykilorð: Stöðugar umbætur, Toyota, Kaizen fyrirtækjamenning, þjónandi forysta

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Daníel Martyn Knipe 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35045
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35045

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Daníel Martyn Knipe 1989-. Sérstaða Toyota : viðhorf til starfsumhverfis Toyota á Íslandi, stöðugar umbætur og þjónandi forysta. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35045