Back to results

Bifröst University

"Það þarf að halda styrkleikum allra á lofti": samspil kynslóða á vinnumarkaði mátað við menningarvíddir Hofstede

Abstract

dc:description.abstract

Á vinnustöðum nútímans starfa þrjár kynslóðir saman, Uppgangskynslóðin, X-kynslóðin og Y-kynslóðin. Þær þykja allar ólíkar að upplagi og hafa fræðimenn, nú á seinni tímum, lagt upp með að rannsaka muninn á þeim með sérstakri áherslu á yngstu kynslóðina, Y kynslóðina, en hún þykir vera hvað mest frábrugðin hinum tveimur. Markmið þessarar rannsóknar var að gera þessum kynslóðamun skýrari skil og beina þá spjótunum að þeim gildum, væntingum, viðhorfum og vinnusiðferði sem einkennir hverja kynslóð fyrir sig. Rannsókninni var líka ætlað að varpa ljósi á það hvort að mögulega togstreitu sé að finna á milli kynslóðanna og út frá hverju hún sé þá helst sprottin. Leitast var við að skerpa á þessum mun sem til staðar er á milli kynslóðanna með því að greina hann út frá menningarvíddum Hofstede og skoða hvort að þar væri einhverskonar samsvörun að finna. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að töluverðan mun er að finna inni á vinnustöðum landsins á milli kynslóða. Sérstaklega áberandi var munurinn á milli yngstu kynslóðarinnar, Y kynslóðarinnar, annars vegar og svo elstu kynslóðarinnar, Uppgangskynslóðarinnar, hins vegar. Munurinn liggur þá helst í þáttum eins og hollustu við vinnustað, viðbrögðum við breytingum, sveigjanleika/aðlögunarhæfni, sambandi starfsmanna við stjórnendur, jafnvægi milli vinnu og einkalífs, hegðun kynslóðanna og viðhorfi sem og sérstökum einkennum hverrar kynslóðar fyrir sig. Einnig kom fram að það örlaði á togstreitu á milli kynslóða en ekkert sem að yfirmenn gerðu mikið úr. Niðurstöður þykja gefa góða innsýn inn í þann kynslóðamun sem er að finna á vinnustöðum landsins og gætu þannig nýst til að mynda við vinnslu mannauðstefna fyrirtækja í framtíðinni. Hugtök: Kynslóðamunur, Y-kynslóð, Menningarvíddir Hofstede

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þóra Helgadóttir 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32456
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32456

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þóra Helgadóttir 1977-. "Það þarf að halda styrkleikum allra á lofti": samspil kynslóða á vinnumarkaði mátað við menningarvíddir Hofstede. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32456