Back to results

Bifröst University

Hvaða þættir stjórnunar hafa áhrif á starfsánægju?

Abstract

dc:description.abstract

Útdráttur Tilgangur og markmið þessarar rannsóknar er að leita svara við rannsóknarspurningunni, hvaða þættir stjórnunar hafa áhrif á starfsánægju. Starfsánægja kemur meðal annars inn á vellíðan starfsmanna og er einn af mikilvægustu þáttum í starfi hvers einstaklings. Starfsánægja hefur verið mikið rannsökuð, meðal annars hafa fræðimenn rannsakað starfsánægju út frá líðan starfsmanna, hvaða hvataþættir hafa þar helst áhrif og hver sé þáttur stjórnenda í því að koma á og viðhalda starfsánægju starfsmanna. Það er að segja hvaða þættir stjórnunar það eru sem hafa áhrif á starfsánægju. Sem þátt í því að leita svara við rannsóknarspurningunni hvaða þættir stjórnunar hafa áhrif á starfsánægju og sem fræðilegt sjónarhorn, framkvæmdi rannsakandi eigindlega (e. qualitative) rannsókn þar sem rannsóknaraðferðin fólst í hálf opnum viðtölum (e. semi structured interviews) við sex mannauðsstjóra. Allir sex viðmælendurnir eru mannauðsstjórar fyrirtækja með fjölda starfsmanna á bilinu frá 250 upp í 830 starfsmenn. Notaður var viðtalsrammi með tuttugu spurningum sem síðan höfðu nokkrar undirspurningar. Nafnleyndar er gætt og koma hvorki fram nöfn viðmælenda né nöfn þeirra fyrirtækja sem viðmælendur starfa hjá. Niðurstöður rannsóknarinnar voru greindar og bornar saman við kenningar sem hafa verið settar fram varðandi starfsánægju. Niðurstöður rannsóknarinnar eru að mestu leyti í samræmi við aðrar sambærilegar rannsóknir. Við greiningu gagna var notast við þemagreiningu (e. thematic analysis) og kóðun (e. coding). Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þættir stjórnunar hafa veruleg áhrif á starfsánægju. Þættir eins og hvati stjórnenda, traust, umbun, verkefni við hæfi, starfsþróun, hlustun og fleiri þættir. Lykilorð: Starfsánægja, áhrif stjórnunar á starfsánægju, umbun, hvatning, starfsþróun, traust, líðan starfsmanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Anna Sigríður Þorkelsdóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 9

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/32450
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/32450

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Anna Sigríður Þorkelsdóttir 1964-. Hvaða þættir stjórnunar hafa áhrif á starfsánægju?. 2019. http://hdl.handle.net/1946/32450