Back to results

Bifröst University

Eru forsendur fyrir því að fara í rekstur þjónustufyrirtækis sem sérhæfir sig í að aðstoða og leiðbeina kaupendum í fasteignaviðskiptum? Hagkvæmnisrannsókn á fýsileika viðskiptahugmyndar

Abstract

dc:description.abstract

Að kaupa íbúð er ein stærsta fjárhagslega ákvörðun sem einstaklingur tekur í lífinu og eru fasteignakaup að jafnaði stærstu fjárfestingar fólks á lífsleiðinni. Það má því segja að mikil ábyrgð liggi hjá fasteignasölum að sinna starfi sínu af heiðarleika þar sem mætti segja að þeir séu að sýsla með aleigu kaupenda. Tilgangur ritgerðarinnar er að framkvæma hagkvæmnisrannsókn (e. feasibility study) um það hvort forsendur séu nægilegar til að taka hugmyndina um stofnun þjónustufyrirtækis sem sérhæfir sig í að aðstoða einstaklinga við kaup á fasteign, sé til þess fallin til að taka á næsta skref sem væri gerð viðskiptaáætlunar. Megindlegra gagna var aflað úr kennslubókum, af vefnum og með því að leggja fyrir spurningakönnun. Við gerð rannsóknarinnar var stuðst við uppsetningu úr bókinni Entrepreneurship and business innovation, the art of successful start-ups and business planning eftir Alan Thompson. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbendingar um að grundvöllur sé til staðar að halda áfram með þróun hugmyndarinnar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vignir Ófeigsson 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/29713
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/29713

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vignir Ófeigsson 1984-. Eru forsendur fyrir því að fara í rekstur þjónustufyrirtækis sem sérhæfir sig í að aðstoða og leiðbeina kaupendum í fasteignaviðskiptum? Hagkvæmnisrannsókn á fýsileika viðskiptahugmyndar. 2018. http://hdl.handle.net/1946/29713