Bifröst University
Stefnum saman í rétta átt : starfshættir skólastjóra - áhrif þeirra á breytingaferli
Abstract
dc:description.abstractViðfangsefni þessarar ritgerðar eru viðhorf kennara til starfshátta skólastjóra í breytingaferli. Annars vegar eru skoðaðar nokkrar kenningar og rannsóknir fræðimanna um breytingastjórnun, árangursríkt skólastarf og mikilvægi faglegrar forystu og þær speglaðar við viðfangsefnið. Skoðaðir eru ýmsir þættir svo sem hvað einkennir starfshætti skólastjóra og þá skóla sem náð hafa árangri, hvað einkennir breytingaferli og hver sé munurinn á stjórnanda og leiðtoga. Eins var rýnt í umgjörð íslensks skólakerfis og forysta skólastjóra skoðuð út frá íslenskum rannsóknum. Hins vegar er í ritgerðinni sagt frá rannsókn þar sem við öflun gagna var notuð eigindleg aðferð byggð á viðtölum við níu kennara úr þremur ólíkum skólum sem gengið höfðu í gegnum breytingaferli. Megintilgangur rannsóknarinnar var að leita svara við spurningunni: Hvað er það í starfsháttum skólastjóra sem gerir það að verkum að kennarar eru tilbúnir til þátttöku í breytingaferli og eru jákvæðir varðandi breytingarnar? Sérstaklega var skoðað hvaða hlutverk skólastjórar hafa í breytingaferli og hvaða þættir í fari þeirra eða stjórnunarstíl skipta mestu máli til að kennarar verða fúsir að fara með í vegferðina. Stuðst var við viðtalsramma og var leitast við að hafa spurningar hálfopnar. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að ákveðnir eiginleikar í fari skólastjóra hafi mest áhrif á það að breytingar eigi sér stað og að kennarar séu jákvæðir til þátttöku. Í því sambandi má nefna að skólastjórinn hafi ákveðna sýn hvert stefnt skuli, mikinn metnað fyrir framförum, nái að skapa samhug um breytingarnar og vinni náið með fólkinu. Einnig benda niðurstöður til þess að jákvæð samskipti starfsfólks við skólastjórann auk trausts, heiðarleika og gleði skipti miklu máli. Þátttaka allra frá upphafi í þróun og innleiðingu virðist skipta verulegu máli í breytingunum og einnig að hvati breytinganna verði til innan skólans. Niðurstöður þessarar rannsóknar á samhljóm með rannsóknum, kenningum og skrifum fræðimanna um þá starfshætti skólastjóra sem eru árangursríkir í allri skólaþróun. Lykilorð: Breytingaferli, leiðtogi, stjórnandi, skólastjóri, árangur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Björk Sigurðardóttir 1966-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/28378
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/28378