Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er kannað og greint hver eru helstu lykilatriði eru teymisvinnu hjá Icelandair Hotels. Skoðuð verða helstu hugtökin forysta, hvatning og teymi. Höfundur notast við afleiddar heimildir og ýmsar kenningar fræðimanna til stuðnings. Einnig styðst höfundur við upplýsingar og sjónarmið fagaðila hjá skipulagsheild. Þar með er eigindlegri rannsóknaraðferð beitt þar sem tekin eru djúpviðtöl við þrjá einstaklinga sem starfa í sömu starfsgrein. Það sem felst í hugtakinu forysta er að það hefur tiltekin áhrif á aðra einstaklinga eða hópa til þess að auka trú, sjálfstraust og ná vissum markmiðum. Hvatning felur í sér til dæmis að hvetja, leiðbeina og veita stuðning. Teymi er hópur af einstaklingum sem nær framúrskarandi árangri vegna þess að fyrirkomulag samstarfs er byggt á annan hátt en hjá þeim sem starfa sem hópur. Þar með er hægt að sjá hver tengslin eru á milli þessara þriggja hugtaka, forysta, hvatning og teymi. Sá sem er í forystu notast í raun við þann eiginleika að hvetja einstaklinga í tilteknum hópi áfram og þar af leiðandi myndast tiltekið teymi. Niðurstöður þessarar rannsóknar eru þær að lykilþáttur í teymisvinnu eru samskipti. Fyrirtækið notast við margvíslegar samskiptaleiðir og ýmis konar hvatakerfi til að mynda þjálfun, námskeið og menntun eru í boði fyrir starfsfólk þeim að kostnaðarlausu. Þar af leiðandi eflist þekking og hæfni starfsfólks Icelandair Hotels sem nýtist þeim í starfi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Dísa Mai Thi Jósepsdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/26834
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/26834