Back to results

Bifröst University

Arðsemi fjárfestinga í íbúðarhúsnæði til útleigu : hver er arðsemi af fjárfestingum í íbúðarhúsnæði til langtímaleigu á höfuðborgarsvæðinu?

Abstract

dc:description.abstract

Hátt leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hefur talsvert verið til umræðu á árinu 2016. Gjarnan hefur verið bent á deilihagkerfið í því sambandi eða lítið framboð á húsnæði. Talað hefur verið um að fjársterkir aðilar sjái sér hag í að kaupa íbúðir til útleigu sem hafi áhrif til verðhækkana á fasteigna og leiguverð. Í þessari rannsóknarritgerð er lagt mat á arðsemi þess að kaupa íbúðir, leigja þær út og selja eftir tólf ár. Gagna til arðsemisgreiningar var aflað með megindlegum rannsóknaraðferðum. Stuðst er við rannsóknarlíkan Philip Kotler og upplýsingum safnað víða að, rannsókninni til stuðnings. Þróun íbúðamarkaðar á höfuðborgarsvæðinu er gerð skil og stöðu þess markaðar árið 2016. Aðferðafræði sjóðstreymisgreiningar er notuð og frjálst sjóðstreymi til rekstrar (FCFF) liggur til grundvallar niðurstaðna. PEST greiningartækni er notuð til að greina ytri áhrif á íbúðamarkað, til að áætla um vænt sjóðstreymi rekstrareininganna sem lagt er mat á. Sjóðstreymisgreining var gerð bæði með tilliti til áætlaðra raunverðshækkana á markaði og án þeirra. Þetta var gert til að greina betur þátt raunverðshækkana í arðseminni. Niðurstöður benda til þess að arðsemi sé af fjárfestingu í íbúðum til útleigu. Nettó núvirði er jákvætt í öllum tilfellum þeirra 12 íbúða sem lagt var mat á og heildararðsemi fjárfestingarinnar 8,46%. Hins vegar kemur einnig í ljós að ef ekki er gert ráð fyrir að selja íbúðirnar heldur leigja þær út um óákveðinn tíma, stendur fjárfestingin ekki undir ávöxtunarkröfu. Því má álykta að rekstraraðilar leiguíbúða til langs tíma sætti sig við lægri ávöxtunarkröfu en lögð var til grundvallar í þessari rannsókn. Þá má álykta að há ávöxtunarkrafa fjármagnseigenda sé ekki megin áhrifaþáttur á hátt leigu eða fasteignaverð. Líklegra eru vextir, byggingarkostnaður og framboð íbúða séu stærstu áhrifavaldar á leigu og fasteignaverð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Örvar Geir Örvarsson 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/26794
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/26794

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Örvar Geir Örvarsson 1979-. Arðsemi fjárfestinga í íbúðarhúsnæði til útleigu : hver er arðsemi af fjárfestingum í íbúðarhúsnæði til langtímaleigu á höfuðborgarsvæðinu?. 2017. http://hdl.handle.net/1946/26794