Back to results

Bifröst University

Leiðir til hvatningar

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður leitast við að svara því hver besta leiðin er til hvatningar starfsmanna fyrir stjórnendur. Til að svara rannsóknarspurningunni var í fyrstu fjallað um mannauðsstjórnun, en hvatning er nytsamlegt tól fyrir stjórnendur innan skipulagsheilda. Næst var hugtakið hvatning útskýrt, en hvatningu má flokka í tvennt; innri hvatning og ytri hvatning. Innri hvatning er sú hvatning sem einstaklingurinn finnur sjálfur innra með sér, til þess að auka sinn eigin skilning til dæmis. Ytri hvatning er hvatning sem kemur frá umhverfinu, líkt og fjárhagsleg umbun og stöðuhækkanir. Því næst voru ýmsar hvatningakenningar skoðaðar, bæði ferlakenningar og þarfakenningar. Ferlakenningar fjalla um hvatningaferlið sjálft og voru jafngildiskenning Adams, væntingakenning Vroom og starfseinkennalíkan Hackman og Oldham teknar fyrir. Þarfakenningar eru þær kenningar sem reyna að áætla hverjar þarfir okkar eru og nýta þær þarfir í að hvetja okkur áfram, líkt og þörfin fyrir viðurkenningu. Þarfapýramídi Maslow, tveggja-þátta kenning Herzberg, þarfakenning McClelland og sjálfræðiskenning Deci og Ryan eru allt þarfakenningar sem fjallað er um í þessari ritgerð. Gerður er samanburður á þarfakenningum annars vegar og ferlakenningum hinsvegar. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að erfitt getur reynst að finna eina leið til að hvetja starfsfólk áfram þar sem persónubundið er hvað hvetur hvern og einn. Þó þótti höfundi væntingakenning Vroom afar hentug til að innleiða í nútímaskipulagsheild vegna þess að kenningin gerir ráð fyrir að einstaklingar séu mismunandi og því er það mismunandi hvað hvetur þá áfram.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elvar Már Ásgeirsson 1986-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/22047
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/22047

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elvar Már Ásgeirsson 1986-. Leiðir til hvatningar. 2015. http://hdl.handle.net/1946/22047