Bifröst University
Að finna upp hjólið : viðhorf kennara og stjórnenda grunnskóla Reykjanesbæjar gagnvart samvinnu og samnýtingu á kennsluefni á milli skóla
Abstract
dc:description.abstractTilgangur þessarar rannsóknar var fyrst og fremst að athuga viðhorf kennara og skólastjórnenda til samstarfs og samnýtingu á efni á milli grunnskóla innan sama bæjarfélags og hvernig það samstarf myndi nýtast kennurum og starfi skólans í heild. Þau sjónarmið sem fjallað er um út frá þessum spurningum er skóli án aðgreiningar, PBS (stuðningur við jákvæða hegðun) og hlutverk skólastjórnenda í að koma á breytingum innan skóla. Sendur var út spurningalisti á netinu til allra kennara starfandi í grunnskólum Reykjanesbæjar og var svarhlutfall um 42% eða 73 af 174 kennurum, 64 konur og 9 karlar. Hlutfall þeirra sem höfðu kennt í 4 ár eða lengur var meira 85% og þeir sem höfðu kennt í 10 ár eða lengur rúm 53%. Þegar spurt var um viðhorf gagnvart samvinnu voru yfir 75% þátttakenda mjög sammála eða frekar sammála að koma ætti á meiri samvinnu á milli kennara á milli grunnskóla innan sama bæjarfélags. Viðtöl voru tekin við átta einstaklinga innan grunnskóla Reykjanesbæjar, tvo kennara, þrjá deildarstjóra, einn aðstoðarskólastjóra og tvo skólastjóra. Niðurstöður þemagreiningar á þeim viðtölum gáfu dýpri sýn inn í viðhorf kennara og stjórnenda í grunnskólum Reykjanesbæjar. Það sem viðtölin gáfu umfram könnun var samband skóla og fræðsluskrifstofu og hvernig samstarfi sé háttað innan og á milli grunnskóla í Reykjanesbæ. Viðhorf þátttakenda í viðtölum var keimlíkt viðhorfi kennara úr könnun og var mikið samræmi á milli svara, þó með meiri útlistun í viðtölum. Helstu niðurstöður voru að meirihluti kennara og stjórnenda voru með jákvæð viðhorf í garð samvinnu á milli skóla og þá bæði hvað varðar kennsluhætti og samnýtingu á efni. Þátttakendum viðhorfskönnunar fannst samvinna á milli kennara mikilvæg en um 98% þeirra töldu þá samvinnu mjög eða frekar mikilvæga. Þá voru um 62% þátttakenda mjög eða frekar sammála að það ætti að samræma kennsluefni á milli skóla. Þátttakendur í viðtölum voru á sama máli en voru varhuga þess konar samræmingu því hún gæti dregið úr sérkennum hvers skóla. Þátttakendur voru einnig mun gjarnari að deila kennsluefni með samstarfsfélögum en með kennurum annarra skóla eða 75% deilir kennsluefni mjög eða frekar oft með samstarfsfélögum en innan við 10% eiga í þannig samstarfi við kennara annarra skóla. Lykilorð: Grunnskólar, samvinna, samhæfing, samnýting, stjórnendur.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hlynur Jónsson 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/22031
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/22031