Bifröst University
Staðreyndir og gildi : íslensk þýðing á kaflanum Fact and value í bókinni Reason, truth, and history eftir Hilary Putnam
Abstract
dc:description.abstractTextinn sem hér fer á eftir er íslensk þýðing á kaflanum Fact and value í bók bandaríska heimspekingsins Hilary Putnams Reason, truth, and history sem fyrst kom út árið 1981. Í kaflanum fjallar Putnam um tvíhyggju staðreynda og gilda sem hann telur að eigi sér djúpar rætur í vestrænni heimspekisögu og hafi enn mikil áhrif á hugsunarhátt margra. Skýrt dæmi um tvíhyggju staðreynda og gilda er að finna í röksemdarfærslu skoska heimspekingsins Davids Hume, sem hélt því fram að ekki væri hægt að leiða skylduboð af staðreyndum. Röksemdarfærslan sem Putnam beitir felur í sér að færa rök fyrir því að greinarmunurinn á staðreyndum og gildum sé í besta falli mjög óljós vegna þess að sjálfar staðhæfingarnar, og hin vísindalega aðferð sem við reiðum okkur á til þess að skera úr um hvað sé og sé ekki staðreynd, byggi á gildum. Verjendur staðreynda-gilda tvískiptingarinnar játi að vísu að vísindi byggi að einhverju leyti á gildum, þau geri t.a.m. ráð fyrir því að við leitum sannleikans, en færi fyrir því rök að þau gildi séu ekki af siðferðislegum toga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Fannar Þór Guðmundsson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/20535
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/20535