Back to results

Bifröst University

Hvað hvetur fólk í starfi?

Abstract

dc:description.abstract

Starfshvatning er hugtak sem hefur gjarnan verið fjallað um og rannsakað og þá sér í lagi áhrif hennar á starfsfólk og framleiðni fyrirtækja. Það er misjafnt hvað hvetur hvern og einn og er mikilvægt fyrir stjórnendur að kynna sér hvað hvetur fólk í starfi til þess að geta ákveðið hvaða leiðir séu viðeigandi í því að umbuna starfsmönnum. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvað það er sem hvetur starfsfólk í starfi og hvort að munur sé á milli starfsmanna eftir kyni, aldri, starfsaldri, menntun, hjúskaparstöðu og hvort þeir eigi afkvæmi eða ekki. Markmiðið er einnig að athuga hvort að stjórnendur þeirra hafi sömu sýn á það hvað hvetji starfsmenn í starfi. Rannsóknin var lögð fyrir starfsmenn og stjórnendur hjá einu stærsta ráðgjafarfyrirtæki Íslands. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem spurningalistar voru lagðir fyrir þátttakendur með rafrænu formi. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að áhugavert starf var þátttakendum helsta hvatningin í starfi. Þar á eftir komu góð laun, starfsöryggi og góðar vinnuaðstæður. Mikilvægisröðun stjórnenda var ekki mjög ólík mikilvægisröðun starfsmanna. Hins vegar var að finna þó nokkurn mun á milli kynjanna, eftir aldri, starfsaldri, menntun, hjúskaparstöðu og hvort viðkomandi ætti börn eða ekki.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Kristjana Jónsdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14183
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14183

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Kristjana Jónsdóttir 1983-. Hvað hvetur fólk í starfi?. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14183