Bifröst University
Hvernig bregðast grunnskólar við og styðja við börn sem glíma við offitu eða ofþyngd og foreldra þeirra?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að kanna með eigindlegri viðtalsaðferð hvaða hlutverk grunnskólar á Íslandi hafa þegar að kemur að úrræðum fyrir börn sem glíma við offitu eða ofþyngd og foreldra þeirra og hvernig samvinnu á milli grunnskóla og heimila er háttað hvað þessi mál varðar. Markmið rannsóknarinnar eru þrjú. Í fyrsta lagi að komast að því hvað grunnskólar eru að gera til að sporna við auknum offituvanda barna á Íslandi og sjónum beint að hlutverki stjórnandans. Í öðru lagi að skoða hvað grunnskólar eru að gera fyrir börn sem glíma við offitu og foreldra þeirra og í þriðja lagi að kanna afstöðu foreldra þeirra barna sem glíma við offitu/ofþyngd til þess sem grunnskólar eru að gera. Til að ná settum markmiðum var notast við eigindlegar rannsóknir, þ.e. viðtöl við skólastjórnendur, skólahjúkrunarfræðinga og foreldra barna sem glíma við offitu eða ofþyngd í þremur grunnskólum. Foreldrar barna sem glíma við offitu eða ofþyngd þurfa stuðning og fleiri úrræði en boðið er upp á í dag og vonast er til að rannsókn þessi muni varpa skýrara ljósi á þörf inngrips í grunnskólum. Helstu niðurstöður: Í ljós kom að enn eiga grunnskólar langt í land þó víða sé ýmislegt verið að gera. Beðið er þar til barn er komið vel yfir kjörþyngd og flokkað undir offitu áður en haft er samband við foreldra. Stjórnendur hafa fá úrræði og lítið fjármagn til að bæta úr. Í sumum tilfellum sjá stjórnendur ekki að frekari úrbætur falli inn á starfssvið grunnskóla. Samkvæmt þeim niðurstöðum sem fram koma í þessari ritgerð þá er stjórnendum grunnskóla bent á að brýn þörf sé á nákvæmari fræðslu innan skólastofunnar, aukinni áherslu á hreyfingu, heilsusamlegra mötuneyti og hæfu starfsfólki og eru þetta þættir sem gera grunnskólana raunhæfan vettvang til inngrips og forvarna gegn offitu barna á Íslandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigríður Valdimarsdóttir 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/13498
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/13498