Back to results

Bifröst University

"Það verður ekkert aftur snúið" : áhrif innleiðslu Byrjendalæsis í grunnskóla í Reykjavík á samvinnu, forystu og starfsþróun í skólanum

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar ritgerðar er rannsókn á innleiðslu Byrjendalæsis í grunnskóla í Reykjavík. Byrjendalæsi er tveggja ára þróunarverkefni sem miðar að því að efla læsikennslu út frá fræðilegum hugmyndum um læsi. Aðferðin er samvirk kennsluaðferð sem fyrst og fremst beinist að kennslu læsis í 1. og 2. bekk þar sem bein lestrarkennsla á sér stað. Rannsóknarspurningin sem lá til grundvallar var þessi: Á hvern hátt hefur innleiðsla Byrjendalæsis í grunnskóla í Reykjavík haft áhrif á samvinnu, forystu og starfsþróun á yngsta stigi skólans? Rannsóknin var eigindleg tilviksrannsókn og var gerð skólaárið 2010–2011. Gögnum var safnað með hálf-formgerðum einstaklings-viðtölum og með því að skoða gögn sem tilheyrðu innleiðslunni. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að kennarar sem tóku þátt í innleiðslunni hafi að mestu leyti náð tökum á þeirri kennslutilhögun sem felst í Byrjendalæsi en síður náð að tileinka sér þá samvinnu og forystu sem innleiðsla verkefnisins krefst. Niðurstaða rannsóknarinnar er einnig sú að festing þróunarverkefnisins sé fremur veik. Nauðsynlegt er fyrir stjórnendur skólans að meta stöðu verkefnisins og skapa tækifæri fyrir kennara, leiðtoga og stjórnendur til að marka nýtt upphaf og styrkja samvinnu og forystu innan hópsins.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Arndís Steinþórsdóttir 1946-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/10328
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/10328

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Arndís Steinþórsdóttir 1946-. "Það verður ekkert aftur snúið" : áhrif innleiðslu Byrjendalæsis í grunnskóla í Reykjavík á samvinnu, forystu og starfsþróun í skólanum. 2011. http://hdl.handle.net/1946/10328