Abstract
dc:description.abstractStórir stjórnlausir gróðureldar voru sjaldgæfir á Íslandi milli 1900 og 2000. Gróðureldahætta hefur hins vegar aukist hér síðustu þrjá áratugi, meðal annars vegna minni beitar, hlýnandi veðurfars, vaxandi gróðurþekju og aukinnar útbreiðslu skóga. Nú er svo komið að rík þörf er orðin á að þróa hér kerfi sem varar almenning og viðbragðsaðila við gróðureldahættu um leið og slíkar aðstæður myndast. Margar aðferðir hafa verið þróaðar erlendis til að meta slíka hættu og sumar þeirra hafa verið í formlegum rekstri í áratugi. Algengastir eru sérhæfðir gróðureldavísar sem byggja á daglegum veðurgögnum. Eitt mest notaða kerfið alþjóðlega er hið kanadíska FWI-kerfi (e. The Canadian Forest Fire Weather Index System). Árið 2025 kom út ný og endurbætt útgáfa af þessu kerfi sem hefur verið nefnt FWI2025. Í þessari rannsókn er FWI2025-kerfið kvarðað fyrir íslenskar aðstæður til að bæta mat á veðurtengdri gróðureldahættu. Notuð voru veðurgögn úr CARRA (e. Copernicus Arctic Regional ReAnalysis) endurgreiningunni fyrir 23 staði á Íslandi á tímabilinu 2005-2025, frá 1. mars til 30. september. FWI2025 var keyrt í klukkustundarupplausn og kvörðuð þröskuldsgildi voru reiknuð fyrir níu stuðla (e. components) og vísa (e. indices) kerfisins: fínefnisrakastuðul (FFMC), svarðrakastuðul (DMC), þurrkstuðul (DC), upphafsútbreiðsluvísi (ISI), eldefnisvísi (BUI), skógareldavísi (FWI), graslendisrakastuðul (GFMC), graslendisútbreiðsluvísi (GSI) og graslendiseldavísi (GFWI). Þröskuldsgildi voru skilgreind út frá 75., 90., 95., 99. og 99,7. prósentumarki og túlkuð sem lítil, miðlungs, mikil, mjög mikil og öfgafull hætta á öflugum gróðureldi ef hann kviknar. Niðurstöðurnar sýna að sjálfgefin FWI2025-viðmið frá Kanada og viðmið frá Alaska henta illa fyrir Ísland. Íslensk þröskuldsgildi fyrir DMC, BUI og FWI eru almennt lægri en sjálfgefin gildi, FFMC-bilið er mun þrengra, en DC-þröskuldsgildi eru hærri í mörgum hættuflokkum vegna langtímauppsöfnunar þurrks yfir gróðureldatímabilið. Svæðisbundinn samanburður sýnir að Norður- og Austurland hefur kerfisbundið hærri þröskuldsgildi fyrir hæggenga þurrkstuðla en Suður- og Vesturland, sem styður notkun svæðisbundinna viðmiða innan Íslands fyrir DMC, DC, BUI og FWI. Fyrir hraðbreytilegri stuðla og graslendislíkan FWI2025 duga sameiginleg landsviðmið betur. Tilfellarannsóknir á Mýraeldum 2006, þurrkinum á Vesturlandi 2019, eldinum í Norðurárdal 2020 og eldinum í Heiðmörk 2021 sýna að kvörðuðu þröskuldsgildin greina hættulegar aðstæður með skýrari hætti en ókvörðuð viðmið. Sérstaklega reyndist graslendiseldavísirinn GFWI gagnlegur fyrir sinuelda og opið gróðurlendi að vori, en innbyggð framvinda sinu í núverandi FWI2025-útfærslu hentar ekki að fullu íslenskum aðstæðum síðar á sumri. Þegar litið var til allra 27 gróðurelda í skrá Náttúrufræðistofnunar sem féllu innan rannsóknartímabilsins (1. mars - 30. september árin 2005-2025) náði að minnsta kosti einn af FFMC, FWI eða GFWI flokknum mikil eða hærri yfir þriggja daga glugga (eldsdaginn og tvo daga á undan) í 24 tilvikum (89%). Markmið rannsóknarinnar náðust öll: kvörðuð þröskuldsgildi voru sett fram fyrir alla níu stuðla og vísa kerfisins, svæðisbundinn munur milli Suður- og Vesturlands og Norður- og Austurlands var staðfestur fyrir hægu þurrkstuðlana (DC, DMC, BUI og FWI), notagildi graslendislíkans FWI2025 (GFMC og GFWI) var metið, og samanburður við sjálfgefin FWI2025-gildi og Alaska-viðmið staðfesti að hvorki sjálfgefin FWI2025-gildi né Alaska-viðmið yfirfærast vel á íslenskar aðstæður. Kvörðunin er því hagnýtt grunnviðmið sem Veðurstofa Íslands og aðrir vöktunaraðilar geta byggt á til að bæta rauntímavöktun á gróðureldahættu, en frekari vinna þarf að beinast að betri lýsingu á íslenskri grænkun, gróðurflokkum og staðbundnu nærviðri.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bolli Pálmason 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Landbúnaðarháskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53706
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/53706