Global ETD Search
Search theses and dissertations gathered from participating repositories worldwide. Every result links back to the library that holds it. No account is needed.
Results
Showing 1 to 16 of 16 for “"Skógfræði"”.
-
Samgöngur í íslenskum skógum
… hjá Skógræktinni síðastliðin tvö ár og nám við skógfræði LBHÍ síðustu þrjú ár, fundið á eigin skinni hversu misjafnar aðstæður eru við skógræktarvinnu á Íslandi. Þar má m.a. nefna erfiðar aðstæður þar sem um langan veg þarf að bera hluti til að vinna þunga vinnu. Vinnu eins og upphreinsun eftir …
-
Vistkerfaþjónusta borgarskóga og virði hennar
Fjöldi rannsókna hefur sýnt að trjágróður í og í grennd við þéttbýli hefur í för með sér fjárhagslegan, samfélagslegan og umhverfislegan ávinning. Þau gæði sem hljótast af vistkerfaþjónustu borgarskóga eru hins vegar jafnan veitt án endurgjalds. Slík tilhögun hefur löngum leitt til vanmats á virði …
-
Gæðaprófanir á viði úr íslenskum skógum sem byggingarefni
… sem hluti meistaraverkefnis hans í skógfræði. Prófanir á styrkeiginleikum voru gerðar á litlum gallalausum sýnum samkvæmt viðurkenndum aðferðum og voru þær framkvæmdar af höfundi í tækjum í eigu Nýsköpunar-miðstöðvar Íslands. Sýni voru tekin á einum stað (á y-ás), eða í miðjum 4,2 …
-
Hönnun upplifunarsvæða í skógum
Það er mikil ábyrgð fólgin í því að hafa umsjón með útivistarskógum borgarinnar og þeim svæðum sem þeim tengjast. Sú ábyrgð felst fyrst og fremst í að tryggja góða umhirðu, að gróður fái að dafna og aðgengi að svæðunum sé gott. En ábyrgðin nær líka til þess að fræða fólk og kynna hvað þessi svæði …
-
Aðferðir til rúmmálsmælinga á stöfluðu timbri
Mæling á rúmmáli viðarstæða er mikilvægur hluti af skógrækt og skógaúttekt. Tilgangur ritgerðarinnar er að skoða þær aðferðir sem beitt er við að framkvæma mælingarnar á hagkvæman og nákvæman máta. Í ritgerðinni er lýst handmælingum með stæðumælingu sem hefðbundinni aðferð á 7 viðarstæðum og svo er …
-
Útbreiðsla birkis (Betula pubescens) í Bæjarstaðarskógi
Bæjarstaðarskógur er náttúrlegur birkiskógur staðsetur á Suðausturlandi. Hann er einstakur á Íslandi þar sem beint, hávaxið birki vex þar í miklu magni, sem er sjaldgæft í íslenskum birkiskógum. Skógurinn hefur verið friðaður síðan árið 1935 og var þá girtur af til að vernda hann gegn beit. Eftir …
-
Áhrif tegundablöndunnar á lifun birkis
Birkiskógar gegna mikilvægu hlutverki í vistkerfum Íslands og eru lykilþáttur í landgræðslu á rýru og rofnu landi. Lifun birkis við slíkar aðstæður getur þó verið takmörkuð og því mikilvægt að skoða hvort tegundablöndun geti bætt árangur við skógrækt. Slík nálgun getur haft áhrif á samspil plantna, …
-
Viðarmagnsáætlun, grisjunaráætlun og samanburður við fjarkönnunargögn
Skógmælingar eru forsenda þess að hægt sé að gera umhirðu- og viðarmagnsáætlanir fyrir skóga. Mikilvægt er að huga að fjölda mælireita og ákvarða úrtakshlutfall í samræmi við breytileika skógarreitanna sem mæla á. Notkun fjarkönnunar til skógmælinga sparar tíma og kostnað en krefst þó ýmissa …
-
Hvítsmári sem fóstra fyrir nýgróðursettar birkiplöntur
Í nýskógrækt á Íslandi er nýgróðursettum plöntum yfirleitt gefinn áburður til að tryggja hraðan upphafsvöxt og draga úr hættu á frostlyftingu, sem er algengt vandamál í íslenskum jarðvegi. Skógræktarsvæði eru oft næringarsnauð, þar sem bæði nitur og fosfór vantar í jarðveginn. Þetta á sérstaklega …
-
Áhrif staðhátta og gróðurfars á birkiplöntur í Hekluskógum
Endurheimt vistkerfa á Hekluskógasvæðinu sem hófst formlega árið 2007, er eitt stærsta endurheimtarverkefni hér á landi. Þar er tekið á lykilvandamálum jarðvegsrofs með skógrækt og þannig stuðlað að því að draga úr öskufoki, stuðla að bættri vatnsmiðlun og bindingu kolefnis. Hekluskógaverkefnið …
-
Kvörðun gróðureldavísa fyrir íslenskar aðstæður
Stórir stjórnlausir gróðureldar voru sjaldgæfir á Íslandi milli 1900 og 2000. Gróðureldahætta hefur hins vegar aukist hér síðustu þrjá áratugi, meðal annars vegna minni beitar, hlýnandi veðurfars, vaxandi gróðurþekju og aukinnar útbreiðslu skóga. Nú er svo komið að rík þörf er orðin á að þróa hér …
-
Áhrif örverusmits, áburðargjafar og gróðursetningarstaða á lifun og æskuvöxt alaskaaspar og stafafuru
Afföll í nýskógrækt á Íslandi eru töluverð og er því sífellt unnið að því að bæta lifun skógarplantna. Meðal þess sem skiptir máli er réttur undirbúningur lands, val á vaxtarstöðum, áburðargjöf, tegundaval og plöntugæði. Í þessari rannsókn voru athuguð áhrif jarðvegssmits úr skógi og lúpínubreiðu, …
-
Útbreiðslusaga birkis við Merkihvol og Stóra-Klofa í Landsveit
Jarðvegseyðing á Íslandi hefur verið mikil frá landnámi vegna óhóflegrar landnýtingar. Birkiskógar tóku að hörfa verulega vegna mikillar nýtingar af völdum manna og bústofns á öldunum eftir landnám og var útbreiðsla þeirra í lágmarki í byrjun 20. aldar. Endurheimt vistkerfa er nauðsynlegt skref til …
-
Greining á skráðum upplýsingum úr nýskógræktarverkefnum
Mikið gagnasafn úr íslenskum nýskógræktarverkefnum er geymt í gagnagrunni Lands og skógar en úrvinnsla á þeim upplýsingum er skammt á veg komin. Í þessari ritgerð er unnið úr hluta þessara upplýsinga með samanburði á vali trjátegunda í upphaflegum ræktunaráætlunum og upplýsinum í …
-
Development of a seeding pellet system for use in soil conservation forestry
Soil conservation forestry is a necessary intervention in Iceland. Ecosystem health relates to ecosystem services, and forest ecosystems best perform those most needed for settlement and land use in Iceland. Soil conservation forestry tends not to generate revenue, and the benefits it offers are …
-
Yrkjatilraun á hunangsberjatoppi
Hunangsberjatoppur (Lonicera caerulea Var.) er berjarunni sem fyrst var tekinn til ræktunar í Rússlandi fyrir rétt rúmri öld. Tegundin á uppruna sinn að rekja til kaldtempraðra svæða norðurhvels. Í dag er þessi berjaplanta að ryðja sér til rúms sem nytjaplanta á Vesturlöndum, samfara vaxandi …