Back to search

University of Iceland

Þýðing og forprófun á mælitækinu: Mat á þekkingu á þrýstingssárum (PUKAT 2.0 - IS)

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Þrýstingssár eru algeng á sjúkrastofnunum um allan heim, þau hafa áhrif á líðan sjúklinga og kostnað heilbrigðiskerfisins. Flest þrýstingssár væri hægt að fyrirbyggja ef hjúkrunarfræðingar beittu gagnreyndri þekkingu í störfum sínum. Til þess að bæta þekkingu er nauðsynlegt að vita hvar fræðsluþarfir liggja. Mælitækið Mat á þekkingu á þrýstingssárum (e. Pressure Ulcer Knowledge Assessment Tool) (PUKAT 2.0) er áreiðanlegt og réttmætt mælitæki til þess að meta þekkingu hjúkrunarfræðinga á þrýstingssárum, það hefur verið þýtt og notað í öðrum löndum. Mælitækið inniheldur 25 spurningar, svarmöguleikar eru 5 og einn þeirra réttur. Tilgangur: Þessi rannsókn er hluti af stærri rannsókn sem er ætlað að kanna þekkingu íslenskra hjúkrunarfræðinga á þrýstingssárum. Markmið rannsóknarinnar var að þýða mælitækið PUKAT 2.0 yfir á íslensku og forprófa það. Aðferð: Rannsóknaraðferðin var eigindleg. Fyrst var mælitækið þýtt af tveimur aðskildum aðilum úr ensku á íslensku. Rannsóknarhópurinn vann úr þeim þýðingum eina lokaþýðingu sem síðan var bakþýdd yfir á ensku af þriðja aðila. Forprófun á mælitækinu fólst í því að 14 hjúkrunarfræðingar voru beðnir um að svara spurningalistanum á meðan skilningur þeirra á spurningum og svarmöguleikum var metinn með ígrunduðum viðtölum. Áhersla var lögð á að meta skilning og var svörum þátttakenda því ekki safnað. Úrtakið var hentugleika- og snjóboltaúrtak og viðtölin voru tekin á tímabilinu 12. - 28. mars 2024. Niðurstöður: Menningarmunur varð til þess að erfitt var að þýða eina spurningu, að öðru leiti gekk þýðingarferlið vel. Alls voru gerðar 117 athugasemdir við mælitækið. Við greiningu á athugasemdunum komu fram fjögur þemu: málfræði og orðalag, uppsetning, innihald (menningarmunur) og útskýringar. Flestar athugasemdir voru gerðar við málfræði eða orðalag. Einhverjar athugasemdir undirstrikuðu möguleg vandamál varðandi skilning á spurningum eða svarmöguleikum. Ályktanir: Niðurstöður sýndu fram á að þýðingin væri að miklu leyti góð þar sem viðmælendur skildu flestar spurningarnar. Samt sem áður voru gerðar margar athugasemdir við mælitækið og benda einhverjar þeirra til þess að staðfæra þurfi mælitækið frekar. Viðmælendum fannst flestum mælitækið mikilvægt og vonast rannsakendur að það verði notað til frekari rannsókna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • María Rún Thorarensen 2001-
  • Álfhildur Erla Kristjánsdóttir 1978-
  • Sigrún Elsa Viðarsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/47007
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/47007

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Rún Thorarensen 2001-; Álfhildur Erla Kristjánsdóttir 1978-; Sigrún Elsa Viðarsdóttir 1991-. Þýðing og forprófun á mælitækinu: Mat á þekkingu á þrýstingssárum (PUKAT 2.0 - IS). 2024. http://hdl.handle.net/1946/47007