Back to search

University of Iceland

Vöðvalengd aftanlærisvöðva hjá hlaupurum. Kvenhlauparar bornir saman við almenning og kvenhlaupara sem stunda jóga

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur: Kanna hvort munur væri á lengd aftanlærisvöðva hjá þremur hópum kvenna, 30-45 ára. Hópur 1 voru konur sem hlaupa a.m.k. 25 km á viku og stunda jóga ≥1 sinni í viku; hópur 2 voru konur sem hlaupa ≥25 km á viku; hópur 3 voru konur sem stunda almenna líkamsrækt ≥3 sinnum í viku (almenningur). Deilt er um hvort liðleiki sé ákjósanlegur fyrir kvenhlaupara og vildum við því skoða það nánar. Aðferð: Þátttakendur voru valdir með hentugleikaúrtaki. Niðurstöður fengust frá mælingum á 36 konum. Þátttakendur svöruðu spurningalista um hreyfingu og meiðsli og svo var aftanlærisvöðvalengd mæld með Óvirkri hnéréttu (Passive knee extension). Þátttakendur þurftu að hafa verið án aftanlærismeiðsla í sex mánuði áður en mælingar hófust. Niðurstöður: Þegar hóparnir voru bornir saman fékkst marktækur munur á milli hóps 1 og 2 og hóps 2 og 3, en ekki á milli hóps 1 og 3. Því mátti sjá að aftanlærisvöðvalengd var marktækt meiri hjá almenningi (3) en hjá hlaupurum (2) (p=0,042). Hlauparar sem stunda jóga voru með marktækt lengri aftanlærisvöðva en hinir hlaupararnir (p=0,0006). Ekki var munur á vöðvalengd hjá hlaupurum sem stunda jóga og almenningi (p=0,092). Samantekt: Niðurstöður sýndu að kvenhlauparar voru með styttri aftanlærisvöðva en almenningur. Einnig voru kvenhlauparar með styttri aftanlærisvöðva en kvenhlauparar sem stunduðu jóga. Rannsóknir í dag hafa ekki getað sýnt fram á aukinn árangur eða lægri meiðslatíðni með bættum liðleika. Sé bættur árangur markmiðið í hlaupi eru teygjur mögulega ekki besti kosturinn. Þó teljum við að jóga sé ákjósanlegt fyrir hlaupara til að auka vellíðan og slökun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Íris Rós Óskarsdóttir 1987-
  • Sara Lind Brynjólfsdóttir 1987-
  • Sólveig María Sigurbjörnsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/12047
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/12047

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Íris Rós Óskarsdóttir 1987-; Sara Lind Brynjólfsdóttir 1987-; Sólveig María Sigurbjörnsdóttir 1985-. Vöðvalengd aftanlærisvöðva hjá hlaupurum. Kvenhlauparar bornir saman við almenning og kvenhlaupara sem stunda jóga. 2012. http://hdl.handle.net/1946/12047