Back to search

University of Iceland

Fyrstu skrefin í grunnskóla : þáttaskil í lífi barna á mótum leik- og grunnskóla

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð er lokaverkefni mitt til B.Ed. prófs í grunnskólakennslu yngri barna. Markmið verkefnisins er að skoða rannsóknir sem gerðar hafa verið á þáttaskilum í lífi barna á mótum leik- og grunnskóla og hvaða aðferðir hægt er að nýta til þess að mynda samfellu í námi barna. Kenningar fræðimannanna Dewey, Vygotsky og Bronfenbrenner um nám og þroska barna eru skoðaðar og hvaða áhrif þær hafa á skólaumhverfið eins og það er í dag. Megin markmið ritgerðarinnar er að skoða hvernig grunnskólakennarar geta tekið á móti börnum úr leikskólanum á farsælan hátt svo upplifun þeirra í þáttaskilum verði sem best. Rannsóknir hafa sýnt fram á að líðan barna í þáttaskilum á mótum leik-og grunnskóla getur haft gríðarlega mikil áhrif líðan þeirra og námsárangur í framtíðinni. Það er því gríðarlega mikilvægt að grunnskólakennarar séu meðvitaðir um líðan barna, reynslu þeirra og þekkingu við upphaf grunnskólans. Ritgerðin er skrifuð til þess að varpa ljósi á mikilvægi þess að taka vel á móti börnum sem eru að byrja í grunnskóla, auka meðvitund um líðan þeirra og mikilvægi þess að þau upplifi sig sem hluta af skólasamfélaginu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrönn Erludóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45610
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45610

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrönn Erludóttir 1989-. Fyrstu skrefin í grunnskóla : þáttaskil í lífi barna á mótum leik- og grunnskóla. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45610