Back to search

University of Iceland

Tengsl óreiðu á heimilum og skjátíma leikskólabarna við einkenni hegðunarvanda

Abstract

dc:description.abstract

Hegðunarvandi leikskólabarna getur haft alvarlegar afleiðingar og hafa rannsóknir beinst að því að kanna hvaða þættir tengjast þróun vandans. Fyrri rannsóknir benda til þess að óreiða á heimilum og skjátími barna séu meðal slíkra þátta. Tilgangur þessarar rannsóknar var að athuga tengsl einkenna hegðunarvanda hjá íslenskum leikskólabörnum við óreiðu á heimilum þeirra annars vegar og skjátíma hins vegar. Þátttakendur voru 822 foreldrar barna á aldrinum 4 til 6 ára af öllu landinu. Til þess að meta hegðunarvanda og óreiðu var notast við spurningalistana Strengths and Difficulties Questionnaire (SDQ) og The Confusion, Hubbub and Order Scale (CHAOS). Auk þess var upplýsingum safnað um skjátíma barnanna og ýmsar bakgrunnsbreytur. Eftirfarandi tilgátur voru settar fram: 1) Að aukin óreiða á heimilum hefði tengsl við meiri hegðunarvanda. 2) Að aukinn skjátími hefði tengsl við meiri hegðunarvanda. Tengsl óreiðu og skjátíma við hegðunarvanda voru metin með þrepaskiptri marghliða aðfallsgreiningu þar sem stjórnað var fyrir áhrifum bakgrunnsbreytna. Fyrri tilgátan var studd en í ljós kom veikt en greinilegt samband óreiðu við einkenni hegðunarvanda. Seinni tilgátan var studd að hluta þar sem skjátími hafði veik tengsl við einkenni hegðunarvanda en þegar stjórnað var fyrir áhrifum óreiðu var sambandið ekki lengur til staðar. Niðurstöðurnar eru í samræmi við fyrri rannsóknir á tengslum óreiðu við hegðunarvanda en ekki tókst að sýna fram á að skjátími einn og sér veiti forspá um hegðunarvanda. Af niðurstöðum þessarar og fyrri rannsókna er því hugsanlegt að hægt sé að beita þekkingu á óreiðu við þróun forvarnar- og meðferðarúrræða við hegðunarvanda leikskólabarna. Samband skjátíma og hegðunarvanda virðist aftur á móti flókið og þörf er á frekari rannsóknum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Liina Björg Laas Sigurðardóttir 1997-
  • Anna Sigríður Jóhannsdóttir 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/35915
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/35915

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Liina Björg Laas Sigurðardóttir 1997-; Anna Sigríður Jóhannsdóttir 1996-. Tengsl óreiðu á heimilum og skjátíma leikskólabarna við einkenni hegðunarvanda. 2020. http://hdl.handle.net/1946/35915