Bifröst University
Í upphafi skal endinn skoða : hvernig nýtist málefnastjórnun í fyrirtækjarekstri?
Abstract
dc:description.abstractTilgangur og markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvernig málefnastjórnun nýtist í fyrirtækjarekstri. Málefnastjórnun sem er skrefið á undan krísustjórnun getur stutt við fyrirtæki að aðlagast að breyttu umhverfi, bregðast við því og breyttum kröfum samfélagsins. Samkeppnishæfi fyrirtækja byggist ekki lengur einungis á því að vera með bestu vöruna og selja sem mest. Eins og uppruni málefnastjórnunar byggir á þá eru samfélagsbreytingar miklar og hraðar í takt við hvernig stafræni heimurinn hefur þróast hratt og þröskuldurinn inn í umræðuna lækkað. Framkvæmd var eiginleg rannsókn (e. qualitative) þar sem tekin voru hálf opin viðtöl (e. semi structured interviews) við framkvæmdastjóra fyrirtækja. Fyrirtækin eru ýmist í framleiðslu eða þjónustu, þau voru ólík í grunninn og stærð en áttu margt sammerkt þegar kom að svörum í viðtölunum þrátt fyrir mismunandi bolmagn til þess að bregðast við umhverfinu. Viðtalsramminn var byggður á þemum (e. theme) sem var unnið útfrá og svörin voru kóðuð (e. coding) undir hverju þema. Rýnt var í hvernig viðbrögð fyrirtækjanna hafa verið í gegnum tíðina við breyttum aðstæðum og krísum. Einnig hvernig þau myndu bregðast við aðstæðum sem samfélagið kallar á þau að bregðast við í dag. Helstu niðurstöðurnar eru þær að fyrirtækin hafi ómeðvitað notast við málefnastjórnun til að bregðast við og lifa af í síbreytilegu umhverfi. Fyrirtækin hafa þróast í gegnum tíð og tíma og aðlagað sig og menningu sína að breyttum tíðaranda að hverju sinni, það þurfi til þess að geta notast við málefnastjórnun.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Viktoría Kr Guðbjartsdóttir 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45204
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45204