Bifröst University
Sameiningar ríkisstofnana á Íslandi : eru ríkisstofnanir að nota aðferðir breytingastjórnunar?
Abstract
dc:description.abstractÞessi lokaritgerð til BS prófs í viðskiptafræði fjallar um breytingastjórnun hjá stofnunum ríkisins. Áhersla er lögð á þá breytingastjórnun sem framkvæmd er við sameiningar stofnana. Ætlunin er að komast að því hvort að ríkisstofnanir séu að nota aðferðir breytingastjórnunar við sameiningar og til þess að leggja mat á það er stuðst við átta skrefa kenningu John P. Kotter (Kotter, 1996). Þær sameiningar sem á að skoða eru sameining heilbrigðisráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytis yfir í velferðarráðuneyti Íslands, sameining dóms- og mannréttindaráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis yfir í innanríkisráðuneyti Íslands, sameining Lýðheilsustöðvar og landlæknisembættis og svo að lokum sameining sjúkrahúsanna í Reykjavík. Niðurstöður athugunar á sameiningum ríkisstofnana eru þær að við undirbúning að sameiningu ráðuneyta hafi yfirleitt verið unnið skipulega með breytingastjórnun. Við sameiningu heilbrigðisráðuneytis og félags- og tryggingamálaráðuneytis var ráðinn sérfræðingur í breytingastjórnun til þess að vinna að undirbúningi sameiningar. Einnig voru haldnir fundir í velferðarráðuneytinu sem og í nýja landlæknisembættinu fyrir lykilstarfsmenn sameiningar og almennt starfsfólk, þar sem farið var yfir ákveðin atriði sem hjálpa til við að fyrirbyggja að sameining mistakist. Í þeim tilfellum var meðal annars stuðst við kenningar John P. Kotter. Aftur á móti við sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík var greinilegt að ekki var verið að nýta breytingarstjórnunarfræðin. Sem dæmi má nefna að það vantaði heildstæða framtíðarsýn og stefnu á Landspítala-Háskólasjúkrahús og kom það fram bæði í skýrslu frá Ríkisendurskoðun sem og í skýrslu landlæknisembættis frá því í nóvember 2002, í miðri sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Kristín Daníelsdóttir 1972-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10213
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10213