Bifröst University
Á Þórshöfn rétt á byggðakvóta? : umfjöllun um byggðakvótaákvæði 10. gr. laga nr. 116/2006 um stjórn fiskveiða. Hver er réttur Þórshafnar í Langanesbyggð til að fá úthlutaðan byggðakvóta?
Abstract
dc:description.abstractÞessi ritgerð er á sviði stjórnsýsluréttar og er lögmætisreglan sú réttarheimild sem að endingu skiptir meginmáli við að svara rannsóknarspurningunni. Byggðakvótaákvæði 10. gr. laga um stjórn fiskveiða nr. 116/2006 er rauði þráðurinn í þessari ritgerð, reglugerðir og álit umboðsmanns Alþingis þar að lútandi og samdráttur í skelvinnslu á Þórshöfn, nánar tiltekið kúffiskvinnslu. Það hefur enginn hæstaréttardómur fallið um byggðakvótamálefni en álit umboðsmanns Alþingis eru fjölmörg. Skorti á hæstaréttardómum er mætt með ítarlegri umfjöllunum um veiðileyfadóminn og Vatneyrardóminn til nánari útskýringa á lögum um stjórn fiskveiða nr. 38/1990 og 116/2006. Farið var í tilurð kvótakerfisins í ritgerðinni og útskýrðir helstu þættir þess með sérstaka áherslu á byggðakvótann og áhrif Veiðileyfadómsins og Vatneyrardómsins á þróun kvótakerfisins. Auk þess var farið yfir svokallað Fagramúlamál en það er þekktast fyrir að hafa verið kært til Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Byggðakvótaúthlutun Stykkishólms á grundvelli samdráttar í skelvinnslu var skoðuð og borin saman við aðstæður á Þórshöfn og eftir að ábendingarbréf umboðsmanns Alþingis til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra var greint má segja að niðurstaðan er líklega sú að Þórshöfn á rétt á byggðakvótaúthlutun á grundvelli samdráttar í skelvinnslu eða kúfskel í þess tilfelli.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Finnbogi Vikar 1978-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/10969
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/10969