Back to search

Bifröst University

Tryggð, ánægja og meðmælaskor á íslenskum fjarskiptamarkaði

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar rannsóknar snýr að því að skoða hjá hvaða fjórum íslenskum fjarskiptafyrirtækjum liggur mesta tryggð, ánægja og hæsta meðmælaskorið, auk þess var kannað hvort tengsl væru þar á milli. Gerð var megindleg rannsókn til að safna saman upplýsingum um viðhorf þátttakenda þar sem spurningalista með 14 spurningum var dreift á samfélagsmiðlum rannsakenda. Helstu niðurstöður bentu til að almennt sé mikil ánægja og tryggð á fjarskiptamarkaði. Þátttakendur sýndu með svörum sínum hegðunartryggð gagnvart öllum fyrirtækjunum þar sem mikill meirihluti þátttakenda höfðu verið í viðskiptum í 2 ár eða lengur við sitt fjarskiptafyrirtæki. Þátttakendur sögðust almennt ólíklegir til að skipta um fjarskiptafyrirtæki á næstu 6 mánuðum, jafnvel þótt ódýrari þjónusta væri í boði annars staðar. Stærsti hluti þátttakenda þótti sitt fjarskiptafyrirtæki standa við gefin loforð og töldu að fjarskiptafyrirtækin uppfylltu væntingar og þarfir þeirra. Hringdu skar sig úr þegar niðurstöðurnar voru skoðaðar í hverju fyrirtæki fyrir sig og skoraði það mjög hátt á öllum mælikvörðum sem settir voru fram og var að jafnaði með hlutfallslega mestu jákvæða svörun í könnuninni. Í heildina voru svör þátttakenda mjög jákvæð nema þegar kom að NPS meðmælaskorinu en þar var Hringdu með langhæsta skorið. Í niðurstöðum sjást einnig tengsl milli tryggðar, ánægju og meðmælaskors hjá fjarskiptafélögunum sem endurspeglast einna helst í lengd viðskiptasambands. Niðurstöðurnar sýna fram á jákvæð tengsl milli á ánægju og tryggðar sem eykst eftir því hversu ánægður viðskiptavinurinn er.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jenný Rósa Baldursdóttir 1976-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45179
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45179

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jenný Rósa Baldursdóttir 1976-. Tryggð, ánægja og meðmælaskor á íslenskum fjarskiptamarkaði. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45179