Back to search

Bifröst University

„Þetta er vegferð, ekki verkefni“ : að hve miklu leyti hafa íslensk smásölufyrirtæki innleitt omnichannel verslunarstefnu?

Abstract

dc:description.abstract

Undanfarin ár hafa skilin milli netverslunar og áþreifanlegrar verslunar orði æ ógreinilegri eftir því sem fyrirtæki reyna í auknum mæli að koma til móts við þarfir og væntingar sítengdra og valdefldra viðskiptavina. Þessi nýi veruleiki kallar á nýja nálgun í smásölu, svokallaða omnichannel verslunarstefnu, þar sem allir snertifletir í ferðalagi viðskiptavina hafa áhrif á heildarupplifun og viðskiptavinir velja þær rásir sem henta hverju sinni. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á að hve miklu leyti íslensk smásölufyrirtæki hafa innleitt omnichannel verslunarstefnu og fá innsýn frá stjórnendum um þær áskoranir sem leiðandi íslensk smásölufyrirtæki standa frammi fyrir á þeirri vegferð. Byggir rannsóknin á nýjustu rannsóknum á omnichannel verslun með samþættingu rása sem leiðarstef. Notast var við tilviksrannsókn þar sem eigindlegum og megindlegum rannsóknaraðferðum var blandað saman. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að fyrirtækin sem tóku þátt í rannsókninni búi yfir litlum til meðal omnichannel þroska og töluvert vanti enn upp á að fyrirtækin veiti viðskiptavinum sínum sanna omnichannel upplifun. Nefndu þátttakendur tíma, kostnaðarsama fjárfestingu og aðgang að réttri og viðeigandi tækni sem hamlandi þætti í átt að meiri samþættingu. Niðurstöður leiddu jafnframt í ljós að skortur á tæknilegri þekkingu og skilningi stjórnenda á omnichannel, vöntun á fjárhagslegum og ófjárhagslegum auðlindum og stefnuleysi séu almennar hindranir fyrir íslensk fyrirtæki þegar kemur að frekari innleiðingu á hnökralausri og samþættri verslunarupplifun.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Auður Ólafsdóttir 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/42544
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/42544

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Auður Ólafsdóttir 1981-. „Þetta er vegferð, ekki verkefni“ : að hve miklu leyti hafa íslensk smásölufyrirtæki innleitt omnichannel verslunarstefnu?. 2022. http://hdl.handle.net/1946/42544