Back to search

Bifröst University

Orkan í álver eða efnavinnslugarð?

Abstract

dc:description.abstract

Meginviðfangsefni þessarar ritgerðar er samanburður á álveri og efnavinnslugarði út frá þjóðhagslegum ávinningi. Hér á Íslandi hefur nýting jarðvarma- og vatnsorku skilað okkur því að innlend orka er mjög mikil í heildarorkunotkun landsins. Orkuauðlindin er engu að síður takmörkuð og unnið hefur verið að því að búa til ramma utan um það magn sem nýta á í framtíðinni. Á suðvesturhorninu m.a. er þörf á að fá orku fyrir nýja starfsemi og hefur sérstaklega verið horft til þess að byggja upp iðnað í Helguvík. Það eru tillögur um að virkja um 600 MW fyrir svæðið en einnig þarf að styrkja flutningsnetið sem er fullnýtt í dag. Álver nota um 74% af raforku landsins en það hefur verið gagnrýnt að vera með svo stórt hlutfall raforkuframleiðslu landsins í einum iðnaði. Ísland stendur vel að mörgu leyti í samkeppni við aðra aðila í heiminum um raforkusölu en þrátt fyrir umhverfisvæna orku og nægt landrými þá eru einnig þættir sem vega á móti samkeppnishæfni landsins. Landfræðileg einangrun og flutningskostnaður til og frá landinu eru þar á meðal, því er orkuverð hér lægra heldur víðast hvar í Evrópu. Hafin er smíði álvers í Helguvík þrátt fyrir að ekki hafi öll ytri skilyrði verið uppfyllt. Einnig hafa komið upp hugmyndir um efnavinnslugarð í Helguvík en það er samansafn af efnafyrirtækjum sem eru á sama svæði og nýta affall og/eða framleiðslu hvors annars til á ná fram betri nýtingu og hámörkun á arðsemi. Við samanburð á þessum tveim kostum þá er niðurstaðan sú að efnavinnslugarður telst álitlegri kostur út frá nýtingu á orkunni og samræmist hann betur orkustefnu Íslands. Áhættan við efnavinnslugarðinn er mögulega meiri, en ávinningarnir geta vegið upp á móti því.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þorvaldur Finnbogason 1971-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/14188
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/14188

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þorvaldur Finnbogason 1971-. Orkan í álver eða efnavinnslugarð?. 2013. http://hdl.handle.net/1946/14188