Back to results

University of Iceland

Endurnýting, endursköpun, nýmyndun : greinargerð

Abstract

dc:description.abstract

Ágrip Verkefnið er tvíþætt, annarsvegar greinargerð og hins vegar tilraunahefti. Í greinargerðinni er fjallað um endurvinnslu og endurnýtingu í grunnskólum og þeirri hugmynd að koma á stofn efnisveitu þar sem endurnýtanlegum efniviði er safnað saman á einn stað og hann nýttur sem skapandi efniviður. Fjallað er um hugmyndafræðina í Reggio Emilia skólum með það í huga að nota hana sem innblástur eða grunn kennsluhátta í verklegri kennslu í grunnskólum. Skoðað er hvaða kennsluaðferðir er hentugt að nota út frá hugmyndafræði Reggio Emilia leikskólanna svo að nemendur geti tamið sér sjálfstæða og gagnrýna hugsun og mikilvægi þess að hafa góðar kveikjur til að örva hugmyndaflug hjá nemendum. Að lokum er fjallað um nokkra hönnuði sem endurnýta og endurvinna til að geta tengt saman kveikju og verkefni. Í tilraunaheftinu Ekkert verður til af engu eru sýndar nokkrar tilraunir þar sem notast er við endurnýtanlegan efnivið. Tilraunaheftið skiptist í tvo hluta; í fyrri hlutanum er unnið með fjölbreytta hringi og búinn til draumavefur, í seinni hlutanum er unnið með margs konar pappír og búnar til pappírsrúllur og pappírsperlur. Heftinu er fyrst og fremst ætlað að kveikja eða koma af stað einhvers konar ferli svo að efniviðurinn sem til er í efnisveitunni ykkar getir kveikt hugmyndir að öðrum verkefnum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristín Garðarsdóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/9621
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/9621

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristín Garðarsdóttir. Endurnýting, endursköpun, nýmyndun : greinargerð. 2011. http://hdl.handle.net/1946/9621