Back to results

University of Iceland

„Hún skilaði mér sjálfstrausti og von.“ Upplifun nemenda á persónulegri ráðgjöf sem náms- og starfsráðgjafar veita í grunnskólum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á upplifun grunnskólanemenda á persónulegri ráðgjöf náms- og starfsráðgjafa annars vegar og hins vegar á sýn náms- og starfsráðgjafa á þjónustuna sem þeir veita nemendum er varðar persónulega ráðgjöf. Rannsóknin byggist á viðtölum við sjö nemendur og þrjá starfandi náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar bentu til að nemendum var vísað til náms- og starfsráðgjafa vegna vanlíðunar sem hafði hamlandi áhrif á námsframvindu þeirra. Þeir nutu persónulegrar ráðgjafar hjá náms- og starfsráðgjöfum þar sem unnið var markvisst með vandann. Nemendur voru í flestum tilvikum ánægðir með þjónustuna og fannst mikilvægt að hafa einhvern til staðar í skólanum sem þeir gátu leitað til eftir þörfum og talað við í trúnaði. Ennfremur benda niðurstöður til að nemendur hafi verið ánægðir með afrakstur ráðgjafarinnar sem skilaði þeim í flestum tilfellum „sjálfstrausti og von“. Vonast er til að niðurstöðurnar geti nýst sem innlegg í stefnumótun náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum og gefi innsýn í heim persónulegu ráðgjafarinnar þar sem þessi hluti þjónustunnar fer fram bak við luktar dyr og er ekki sýnilegur sökum trúnaðarins sem náms- og starfsráðgjafarnir eru bundnir við nemendur sína. Niðurstöðurnar ættu einnig að styrkja stöðu náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum sem eru í lykilaðstöðu til þess að vinna með vanda er steðjar að nemendum í námi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Jóhanna Einarsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/7993
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/7993

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Jóhanna Einarsdóttir 1967-. „Hún skilaði mér sjálfstrausti og von.“ Upplifun nemenda á persónulegri ráðgjöf sem náms- og starfsráðgjafar veita í grunnskólum. 2011. http://hdl.handle.net/1946/7993