Back to results

University of Iceland

Stuðningur við jákvæða hegðun: Beinar áhorfsmælingar í 1-3 bekk í þremur grunnskólum í Reykjanesbæ vorið 2010

Abstract

dc:description.abstract

Grunnskólar þurfa einhverjar aðferðir til þess að takast á við hegðunarvandamál vegna þess að mörg börn glíma við slík vandamál. Hægt er að flokka hegðunarvandamál eins og gert er í DSM–kerfi. Algengustu hegðunarraskanir barna eru ofvirkniröskun (attention-defict/hyperactivity disorder; ADHD) mótþrjóskuröskun (oppositional defiant disorder; ODD) og hegðunarröskun (conduct disorder; CD). Stuðningur við jákvæða hegðun (positive behavior support; PBS) er ein leið til þess að takast á við hegðunarvandamál í grunnskólum. Þrír grunnskólar í Reykjanesbæ hafa verið að innleiða PBS síðan haustið 2007. Mælingarnar í þessari rannsókn voru teknar vorið 2010 og eru hluti af mati á áhrifum PBS í þessum skólum. Niðurstöðurnar sýndu að kennarar nota aðferðir PBS að einhverju leyti. Minna var um að kennarar og annað starfsfólk fylgdu aðferðum PBS kerfisins á almennum svæðum en í kennslustofum. Sömuleiðis var meira um óæskilega hegðun á almennum svæðum en í kennslustofum. Hugsanlega má skýra verri hegðun á almennum svæðum með því að þar var minna um að starfsmenn fylgdu PBS kerfinu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinunn Sif Sverrisdóttir 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/5370
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/5370

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinunn Sif Sverrisdóttir 1983-. Stuðningur við jákvæða hegðun: Beinar áhorfsmælingar í 1-3 bekk í þremur grunnskólum í Reykjanesbæ vorið 2010. 2010. http://hdl.handle.net/1946/5370