Abstract
dc:description.abstractStærðfræðinám á yngsta stigi grunnskóla leggur grunn að áframhaldandi námsárangri nemenda og viðhorfi þeirra til greinarinnar. Rannsóknir sýna að talnaskilningur, hugarreikningur og áhugahvöt eru lykilþættir í árangursríku stærðfræðinámi. Markmið þessa verkefnis var að kanna hvernig hægt er að hanna borðspil í stærðfræði sem styður við þessa þætti hjá nemendum í 3. bekk grunnskóla. Verkefnið fólst í hönnun og þróun borðspils sem byggir á fræðilegum kenningum um leik í námi, talnaskilning og áhugahvöt. Spilið samanstendur af verkefnaspilum, atburðaspilum og umbunarkerfi sem miðar að því að efla virkni og þátttöku nemenda. Við þróun spilsins var stuðst við viðurkenndar heimildir á sviði stærðfræðimenntunar og kennslufræði. Niðurstöður benda til þess að borðspil geti verið áhrifaríkt kennslutæki sem styður við talnaskilning og hugarreikning í gegnum fjölbreytt verkefni og endurtekningu í leikandi samhengi. Einnig getur slíkt kennslutæki aukið áhugahvöt nemenda og stuðlað að jákvæðara viðhorfi til stærðfræðináms. Verkefnið sýnir að hægt er að samþætta leik og nám á markvissan hátt og skapa kennslutæki sem styður við markmið Aðalnámskrár grunnskóla. Það felur í sér viðbót við kennsluaðferðir í stærðfræði og getur nýst kennurum til að efla fjölbreytni og virkni í kennslu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Andrea Kristín Bosma 1999-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52414
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52414