Abstract
dc:description.abstractLeikskólastarf á Íslandi byggir á þeirri sýn að leikur sé meginnámsleið barna og að vellíðan, virk þátttaka og sjálfstæði séu í forgrunni. Hugtakið flæði (e.flow), eins og það er skilgreint af Mihaly Csikszentmihalyi, lýsir ástandi djúprar einbeitingar og innri áhugahvatar og hefur í auknum mæli verið tengt námi og leik barna. Tilgangur ritgerðarinnar er að rýna í flæði og birtingarmyndir þess í leikskólastarfi á Íslandi. Ritgerðin byggir á fræðilegri heimildarannsókn þar sem greindar eru innlendar og erlendar rannsóknir um flæði, leik, hæglæti (e. slow pedagogy) og hlutverk leikskólakennara. Niðurstöður benda til þess að flæði birtist einkum í frjálsum og samfelldum leik þegar börn hafa raunverulegt sjálfstæði, aðgengi að fjölbreyttum efnivið og nægan tíma án truflana. Fagleg nærvera leikskólakennara, skipulag umhverfis sem styður við sjálfstæði, virkni og einbeitingu og jafnvægi milli áskorana og færni barna, þar sem viðfangsefni er hæfilega krefjandi miðað við getu barna, eru lykilþættir til að skapa aðstæður til flæðis. Niðurstöður umfjöllunnar varpa ljósi á tengsl flæðis við merkingarbært nám (e. meaningful learning) og vellíðan barna, þær benda einnig til þess að hugtakið geti nýst sem fagleg viðmið í þróun leikskólastarfs þar sem gæði reynslu barna eru í forgrunni.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Bryndís Ósk Unnarsdóttir 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52323
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52323