Back to results

University of Iceland

„Þau verða nú að læra eitthvað hjá þér í vetur!“: Sjálfsprottinn leikur sem námsleið barna í náttúrulegu umhverfi

Abstract

dc:description.abstract

Færst hefur í aukana að formlegir kennsluhættir grunnskólanna séu notaðir í leikskólastarfi, með þá hugsun að verið sé að undirbúa börn undir grunnskólagöngu sína. Jón Torfi Jónasson (2006) hefur notað hugtakið bóknámsrek (e. academic drift) í rannsóknum sínum, hann bendir á að þessi þróun stuðli að samruna á milli menntakerfa og hvert skólastig þróist þá ekki í samræmi við þær áherslur sem þeim ber að vinna eftir. Það kemur skýrt fram í Aðalnámskrá leikskólanna (2011) að formlegir kennsluhættir eiga ekki heima innan veggja leikskólanna í neinu formi og halda þurfi verndarvæng yfir helstu námsleið barna sem leikurinn er. Það sé hlutverk leikskólakennara að veita börnum það rými og þann tíma sem þau þurfa til að nýta leikinn sem sína aðalnámsleið. Hér var framkvæmd starfendarannsókn í leikskóla þar sem þörf var á breyttum starfsháttum á deild elstu barna leikskólans, þar sem lögð var of mikil áhersla á formlegt nám á kostnað leiks. Markmiðið með rannsókninni var að fjölga ferðum út fyrir leikskólalóðina með það í huga að leggja áherslu á leik barnanna í náttúrulegu umhverfi. Tilgangur verkefnisins var að koma auga á þann ávinning sem kennari og börn öðlast af aukinni útiveru og rýna í hvernig nám barna fer fram í sjálfsprottnum leik í náttúrunni. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að ávinningur barnanna og rannsakandans af aukinni útiveru er fjölþættur. Börnin styrktust sem hópur í vináttu, samskiptum, hjálpsemi og tillitssemi. Námslegur ávinningur hvers og eins barns var einnig víðtækur þar sem þau byggðu upp persónulega og fjölbreytta reynslu hvert á sínum forsendum í margvíslegum aðstæðum. Þau efldust hvert á sinn hátt hvað varðar getu, styrk og þor í leik sínum í náttúrunni. Sem kennari fann ég djúpa tengingu við börnin sem samverkamaður þeirra og félagi á allt annan hátt en birtist í starfinu innan veggja leikskólans. Í samfélagi þar sem áhersla á útiveru barna hefur minnkað sökum margra þátta, er mikilvægt að fagmenn innan leikskólanna veiti börnum tækifæri á þeirri dýrmætu reynslu sem þau geta öðlast í náttúrunni í gegnum leik. Sá mikilvægi ávinningur sem börn öðlast í náttúrunni er ómetanlegur fyrir framtíð þeirra sem lýðræðislegir borgarar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kristjana Arnarsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50021
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50021

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kristjana Arnarsdóttir 1982-. „Þau verða nú að læra eitthvað hjá þér í vetur!“: Sjálfsprottinn leikur sem námsleið barna í náttúrulegu umhverfi. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50021