Back to results

University of Iceland

Námsþroski leikskólabarna: Mat á próffræðilegum eiginleikum Námsþroskalistans og tengslum hans við bakgrunn barna

Abstract

dc:description.abstract

Námsþroski leikskólabarna og tengsl hans við félagslega og einstaklingsbundna þætti er mikilvægt rannsóknarsvið í ljósi snemmtæks stuðnings og undirbúnings fyrir skólagöngu. Markmið rannsóknarinnar var að leggja mat á próffræðilega eiginleika nýs þroskalista sem ætlaður var til að greina námsþroska leikskólabarna og kanna tengsl hans við valdar bakgrunnsbreytur. Þátttakendur voru 547 foreldrar og forráðamenn barna á aldrinum 32 til 83. Þau svöruðu 210 staðhæfingum í Námsþroskalistanum um málstarf og undirbúningsfærni barna sinna. Í listanum eru fimm undirpróf; hlustun, tal, lestur, ritun og talnaskilningur. Niðurstöður sýndu að listinn hafði góða próffræðilega eiginleika og stig barna hækkuðu með aldri. Stúlkur voru metnar hærri en drengir í tali, lestri og ritun. Hærra menntunarstig mæðra tengdist meiri færni barna í öllum þáttum. Málumhverfi barnanna heima hafði jákvæð tengsl við flest undirprófin en skjánotkun neikvæð tengsl. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa dýrmætar vísbendingar um hvernig mat á námsþroska barna getur nýst í íslensku leikskólastarfi og hvað foreldrar geta gert til að skapa örvandi umhverfi á heimilum barna. Jafnframt styðja þær við áframhaldandi þróun og stöðlun slíks mats hérlendis.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sunna Ýr Sturludóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49461
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49461

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sunna Ýr Sturludóttir 1997-. Námsþroski leikskólabarna: Mat á próffræðilegum eiginleikum Námsþroskalistans og tengslum hans við bakgrunn barna. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49461