University of Iceland
Námsþroski leikskólabarna: Mat á próffræðilegum eiginleikum Námsþroskalistans og tengslum hans við bakgrunn barna
Abstract
dc:description.abstractNámsþroski leikskólabarna og tengsl hans við félagslega og einstaklingsbundna þætti er mikilvægt rannsóknarsvið í ljósi snemmtæks stuðnings og undirbúnings fyrir skólagöngu. Markmið rannsóknarinnar var að leggja mat á próffræðilega eiginleika nýs þroskalista sem ætlaður var til að greina námsþroska leikskólabarna og kanna tengsl hans við valdar bakgrunnsbreytur. Þátttakendur voru 547 foreldrar og forráðamenn barna á aldrinum 32 til 83. Þau svöruðu 210 staðhæfingum í Námsþroskalistanum um málstarf og undirbúningsfærni barna sinna. Í listanum eru fimm undirpróf; hlustun, tal, lestur, ritun og talnaskilningur. Niðurstöður sýndu að listinn hafði góða próffræðilega eiginleika og stig barna hækkuðu með aldri. Stúlkur voru metnar hærri en drengir í tali, lestri og ritun. Hærra menntunarstig mæðra tengdist meiri færni barna í öllum þáttum. Málumhverfi barnanna heima hafði jákvæð tengsl við flest undirprófin en skjánotkun neikvæð tengsl. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa dýrmætar vísbendingar um hvernig mat á námsþroska barna getur nýst í íslensku leikskólastarfi og hvað foreldrar geta gert til að skapa örvandi umhverfi á heimilum barna. Jafnframt styðja þær við áframhaldandi þróun og stöðlun slíks mats hérlendis.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sunna Ýr Sturludóttir 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49461
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49461