University of Iceland
Stjórnun og vinnustreita í félagsráðgjöf: Hlutverk stuðnings og samskipta stjórnenda
Abstract
dc:description.abstractRannsóknin fjallar um áhrif stjórnunaraðferða á vinnustreitu meðal félagsráðgjafa á Íslandi. Sérstök áhersla er lögð á hlutverk stjórnenda í að veita stuðning, tryggja skýrleika í starfskröfum og efla jákvæð samskipti. Rannsóknin notaðist við megindlegt rannsóknarsnið þar sem stuðst var við QPS Nordic spurningalistinn til að safna gögnum frá íslenskum félagsráðgjöfum. Greining gagna byggðist á lýsandi tölfræði og fylgnigreiningu til að kanna tengsl stjórnunarhátta við vinnustreitu. Helstu niðurstöður sýndu að skýrleiki í starfskröfum var lykilatriði til að draga úr vinnustreitu, á meðan stuðningur frá stjórnendum hafði minni áhrif en búist var við. Jákvæð samskipti milli stjórnenda og starfsfólks drógu úr streitu en þurfa að vera markviss og uppfylla þarfir starfsfólks til að vera árangursrík. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi skýrra og stuðningsríkra stjórnunarhátta til að draga úr vinnustreitu og bæta líðan starfsfólks. Rannsóknin bætir við þekkingu á þessu sviði og veitir mikilvægar vísbendingar fyrir stefnumótun innan velferðarþjónustunnar. Með því að beita markvissum stjórnunaraðferðum má draga úr álagi félagsráðgjafa og stuðla að bættri starfsánægju og auknum gæðum þjónustu við skjólstæðinga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eysteinn Orri Valsson 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/48730
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48730