University of Iceland
„Eitt leiðir af öðru og … “ : hvernig framhaldsskólanemar vinna með samþykki í kynferðislegum aðstæðum
Abstract
dc:description.abstractValdamisræmi kynjakerfisins á sér ýmsar birtingarmyndir í samfélaginu og það má jafnframt greina í margvíslegum aðstæðum, meðal annars í kynlífi. Kynlífsmenning framhaldsskólanema er þar engin undantekning. Í þessari rannsókn er leitast við að kortleggja hvernig framhaldsskólanemar vinna með samþykki í kynlífi. Það er gert til þess að skilja betur hlutverk samþykkis í kynferðislegum aðstæðum. Með sögulokaaðferðinni (e. story completion) er hægt rýna í hugmyndir og gildismat þessa samfélagshóps en gögnin eru á formi sagna sem samdar voru af þátttakendum. Í þeim má greina fjögur þemu; 1) Samþykki notað sem gæðastimpill; 2) Sögur um samþykki; 3) Samþykki ekki ofarlega í huga við kynferðislegar aðstæður; 4) Ákaft samþykki fyrir kynlífi ekki til staðar. Af þeim 56 sögum sem rannsóknin byggir á innihéldu 25 samþykki af einhverju tagi, en 31 ekki. Í þau skipti sem samþykki var til staðar var sjaldnast sagt frá því hvernig það var fengið eða gefið. Greina mátti misvísandi skilaboð og óbein samskipti í flestum sögum. Það er ljóst að hið ríkjandi gagnkynhneigða kynlífshandrit (e. sexual scripts) viðheldur sömu íhaldssömu gildum og viðmiðum um ríkjandi karlmennsku og styðjandi kvenleika sem birtist í hegðun ungmenna. Þekking ungmenna á samþykki er einhver en ristir ekki djúpt. Þörf er á meiri og markvissari kynfræðslu sem fjallar um samskipti og kynferðislegt samþykki ásamt því að leggja áherslu á mikilvægi kynferðislegrar ánægju og löngun stúlkna/kvenna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ágústa Björg Kristjánsdóttir 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskóli Íslands
Subjects
dc:subject × 9Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/45435
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/45435