Back to results

University of Iceland

„Ég þurfti bara tækifæri til að komast inn“ Upplifun einstaklinga af þjónustu Atvinnu- og virknimiðlunar og vinnumarkaðsaðgerðum Reykjavíkurborgar

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun einstaklinga sem fengu tímabundinn ráðningarsamning í gegnum starfsendurhæfingar -og vinnumarkaðsúrræði Reykjavíkurborgar. Þetta tiltekna vinnumarkaðsúrrræði, Atvinnu- og virknimiðlun, var í boði fyrir einstaklinga sem fengu fjárhagsaðstoð til framfærslu eða atvinnuleysisbætur og fengu þátttakendur tímabundinn ráðningarsamning í sex mánuði. Störfin voru ýmist hönnuð fyrir einstaklingana út frá fyrri störfum, kunnáttu eða menntun og voru flest störfin innan Reykjavíkurborgar eða að eigin vali þátttakanda á almennum vinnumarkaði. Með því að fá að heyra upplifun þeirra sem tekið hafa þátt í úrræðinu er hægt að meta hvað er verið að gera vel og hvað má bæta ásamt því að kanna hvort þetta hafi haft önnur áhrif t.d á líðan og virkni þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að störf og þjónusta Atvinnu- og virknimiðlunar hafi skipt sköpum í að veita þátttakendum tækifæri til að komast inn á vinnumarkað. Upplifun þátttakenda af þjónustunni var jákvæð og reyndist starfsfólk Atvinnu- og virknimiðlunar þeim vel. Hindranir í atvinnuleit eru fjölmargar en helstu hindranir sem fram komu í þessari rannsókn voru menntun, bæði hátt menntunarstig og lágt menntunarstig, aldursfordómar, kynþáttarmisrétti, andleg veikindi og áfengisneysla. Niðurstöður þessarar rannsóknar samsvara niðurstöðum erlendra rannsókna. Flestum viðmælendum gekk vel að fóta sig á vinnumarkaði að vinnumarkaðsúrræðinu loknu. Þátttaka þeirra gaf þeim reynslu, aukinn félagsauð, reyndist valdeflandi og stuðlaði að bættri líðan. Það sem hjálpaði einna helst í vinnumarkaðsúrræðinu var tækifærið að komast inn þ.e. inn á vinnumarkað sem hafði reynst þeim erfitt. Annað sem hjálpaði var hve snöggt ferlið var í kjölfar þess að þátttakendur komust í samband við Atvinnu- og virknimiðlun. Þó kom í ljós að vinnumarkaðsúrræðið er ekki gallalaust, en helstu gallar þess voru tengdir verkferlum Reykjavíkurborgar en aðrir gallar sem fram komu getur Atvinnu- og virknimiðlun kippt í lag auðveldlega. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þó jákvæð áhrif vinnumarkaðsúrræðisins á andlega líðan og félaglega virkni þátttakenda, sem jókst til muna á meðan því stóð. Lykilorð: atvinnuleysi, fátækt, fjárhagsaðstoð, atvinnuúrræði, virkniúrræði

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Edda Laufey Bjarnadóttir 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43031
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43031

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Edda Laufey Bjarnadóttir 1995-. „Ég þurfti bara tækifæri til að komast inn“ Upplifun einstaklinga af þjónustu Atvinnu- og virknimiðlunar og vinnumarkaðsaðgerðum Reykjavíkurborgar. 2022. http://hdl.handle.net/1946/43031