{"id":{"repo_id":"u-iceland","oai_identifier":"oai:skemman.is:1946/43031"},"canonical_url":"https://search.dev.ndltd.org/etd/u-iceland/oai:skemman.is:1946/43031","repository":{"repo_id":"u-iceland","name":"University of Iceland","base_url":"https://skemman.is/oai/request"},"display":{"title":"„Ég þurfti bara tækifæri til að komast inn“ Upplifun einstaklinga af þjónustu Atvinnu- og virknimiðlunar og vinnumarkaðsaðgerðum Reykjavíkurborgar","abstract":"Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun einstaklinga sem fengu tímabundinn ráðningarsamning í gegnum starfsendurhæfingar -og vinnumarkaðsúrræði Reykjavíkurborgar. Þetta tiltekna vinnumarkaðsúrrræði, Atvinnu- og virknimiðlun, var í boði fyrir einstaklinga sem fengu fjárhagsaðstoð til framfærslu eða atvinnuleysisbætur og fengu þátttakendur tímabundinn ráðningarsamning í sex mánuði. Störfin voru ýmist hönnuð fyrir einstaklingana út frá fyrri störfum, kunnáttu eða menntun og voru flest störfin innan Reykjavíkurborgar eða að eigin vali þátttakanda á almennum vinnumarkaði. Með því að fá að heyra upplifun þeirra sem tekið hafa þátt í úrræðinu er hægt að meta hvað er verið að gera vel og hvað má bæta ásamt því að kanna hvort þetta hafi haft önnur áhrif t.d á líðan og virkni þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að störf og þjónusta Atvinnu- og virknimiðlunar hafi skipt sköpum í að veita þátttakendum tækifæri til að komast inn á vinnumarkað. Upplifun þátttakenda af þjónustunni var jákvæð og reyndist starfsfólk Atvinnu- og virknimiðlunar þeim vel. Hindranir í atvinnuleit eru fjölmargar en helstu hindranir sem fram komu í þessari rannsókn voru menntun, bæði hátt menntunarstig og lágt menntunarstig, aldursfordómar, kynþáttarmisrétti, andleg veikindi og áfengisneysla. Niðurstöður þessarar rannsóknar samsvara niðurstöðum erlendra rannsókna. Flestum viðmælendum gekk vel að fóta sig á vinnumarkaði að vinnumarkaðsúrræðinu loknu. Þátttaka þeirra gaf þeim reynslu, aukinn félagsauð, reyndist valdeflandi og stuðlaði að bættri líðan. Það sem hjálpaði einna helst í vinnumarkaðsúrræðinu var tækifærið að komast inn þ.e. inn á vinnumarkað sem hafði reynst þeim erfitt. Annað sem hjálpaði var hve snöggt ferlið var í kjölfar þess að þátttakendur komust í samband við Atvinnu- og virknimiðlun. Þó kom í ljós að vinnumarkaðsúrræðið er ekki gallalaust, en helstu gallar þess voru tengdir verkferlum Reykjavíkurborgar en aðrir gallar sem fram komu getur Atvinnu- og virknimiðlun kippt í lag auðveldlega. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þó jákvæð áhrif vinnumarkaðsúrræðisins á andlega líðan og félaglega virkni þátttakenda, sem jókst til muna á meðan því stóð. Lykilorð: atvinnuleysi, fátækt, fjárhagsaðstoð, atvinnuúrræði, virkniúrræði","abstract_html":"Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun einstaklinga sem fengu tímabundinn ráðningarsamning í gegnum starfsendurhæfingar -og vinnumarkaðsúrræði Reykjavíkurborgar. Þetta tiltekna vinnumarkaðsúrrræði, Atvinnu- og virknimiðlun, var í boði fyrir einstaklinga sem fengu fjárhagsaðstoð til framfærslu eða atvinnuleysisbætur og fengu þátttakendur tímabundinn ráðningarsamning í sex mánuði. Störfin voru ýmist hönnuð fyrir einstaklingana út frá fyrri störfum, kunnáttu eða menntun og voru flest störfin innan Reykjavíkurborgar eða að eigin vali þátttakanda á almennum vinnumarkaði. Með því að fá að heyra upplifun þeirra sem tekið hafa þátt í úrræðinu er hægt að meta hvað er verið að gera vel og hvað má bæta ásamt því að kanna hvort þetta hafi haft önnur áhrif t.d á líðan og virkni þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að störf og þjónusta Atvinnu- og virknimiðlunar hafi skipt sköpum í að veita þátttakendum tækifæri til að komast inn á vinnumarkað. Upplifun þátttakenda af þjónustunni var jákvæð og reyndist starfsfólk Atvinnu- og virknimiðlunar þeim vel. Hindranir í atvinnuleit eru fjölmargar en helstu hindranir sem fram komu í þessari rannsókn voru menntun, bæði hátt menntunarstig og lágt menntunarstig, aldursfordómar, kynþáttarmisrétti, andleg veikindi og áfengisneysla. Niðurstöður þessarar rannsóknar samsvara niðurstöðum erlendra rannsókna. Flestum viðmælendum gekk vel að fóta sig á vinnumarkaði að vinnumarkaðsúrræðinu loknu. Þátttaka þeirra gaf þeim reynslu, aukinn félagsauð, reyndist valdeflandi og stuðlaði að bættri líðan. Það sem hjálpaði einna helst í vinnumarkaðsúrræðinu var tækifærið að komast inn þ.e. inn á vinnumarkað sem hafði reynst þeim erfitt. Annað sem hjálpaði var hve snöggt ferlið var í kjölfar þess að þátttakendur komust í samband við Atvinnu- og virknimiðlun. Þó kom í ljós að vinnumarkaðsúrræðið er ekki gallalaust, en helstu gallar þess voru tengdir verkferlum Reykjavíkurborgar en aðrir gallar sem fram komu getur Atvinnu- og virknimiðlun kippt í lag auðveldlega. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þó jákvæð áhrif vinnumarkaðsúrræðisins á andlega líðan og félaglega virkni þátttakenda, sem jókst til muna á meðan því stóð. Lykilorð: atvinnuleysi, fátækt, fjárhagsaðstoð, atvinnuúrræði, virkniúrræði","abstract_has_math":false,"creators":["Edda Laufey Bjarnadóttir 1995-"],"institution":null,"degree_name":null,"degree_level":null,"degree_discipline":null,"degree_department":null,"school":null,"contributors":["Háskóli Íslands"],"advisors":[],"committee_chairs":[],"committee_members":[],"year":2022,"date_issued":"2022-11-28T11:10:00Z","date_published":"2022-11-28T11:10:00Z","updated_at":"2026-07-27T21:43:28Z","subjects":["Félagsráðgjöf","Starfsendurhæfing","Vinnumarkaður"],"languages":["is"],"rights":[],"rights_urls":[],"identifier_entries":[]},"links":{"outbound_url":"http://hdl.handle.net/1946/43031","outbound_label":"Handle","outbound_source":"dc:identifier.uri"},"metadata_groups":[{"id":"people","label":"People","entries":[{"key":"dc:contributor","label":"Contributor","values":["Háskóli Íslands"]},{"key":"dc:creator","label":"Author","values":["Edda Laufey Bjarnadóttir 1995-"]}]},{"id":"academic_context","label":"Academic Context","entries":[{"key":"dc:date.accessioned","label":"Dc Date Accessioned","values":["2022-11-28T11:09:59Z"]},{"key":"dc:date.available","label":"Dc Date Available","values":["2022-11-28T11:09:59Z"]},{"key":"dc:date.issued","label":"Date","values":["2022-11-28T11:10:00Z"]},{"key":"dc:type","label":"Dc Type","values":["Thesis"]}]},{"id":"subjects_keywords","label":"Subjects and Keywords","entries":[{"key":"dc:subject","label":"Dc Subject","values":["Félagsráðgjöf","Starfsendurhæfing","Vinnumarkaður"]}]},{"id":"language_rights","label":"Language and Rights","entries":[{"key":"dc:language.iso","label":"Language (ISO)","values":["is"]}]},{"id":"identifiers","label":"Identifiers","entries":[{"key":"dc:identifier.uri","label":"Identifier URI","values":["http://hdl.handle.net/1946/43031"]}]},{"id":"additional","label":"Additional Metadata","entries":[{"key":"dc:description.abstract","label":"Abstract","values":["Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun einstaklinga sem fengu tímabundinn ráðningarsamning í gegnum starfsendurhæfingar -og vinnumarkaðsúrræði Reykjavíkurborgar. Þetta tiltekna vinnumarkaðsúrrræði, Atvinnu- og virknimiðlun, var í boði fyrir einstaklinga sem fengu fjárhagsaðstoð til framfærslu eða atvinnuleysisbætur og fengu þátttakendur tímabundinn ráðningarsamning í sex mánuði. Störfin voru ýmist hönnuð fyrir einstaklingana út frá fyrri störfum, kunnáttu eða menntun og voru flest störfin innan Reykjavíkurborgar eða að eigin vali þátttakanda á almennum vinnumarkaði. Með því að fá að heyra upplifun þeirra sem tekið hafa þátt í úrræðinu er hægt að meta hvað er verið að gera vel og hvað má bæta ásamt því að kanna hvort þetta hafi haft önnur áhrif t.d á líðan og virkni þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að störf og þjónusta Atvinnu- og virknimiðlunar hafi skipt sköpum í að veita þátttakendum tækifæri til að komast inn á vinnumarkað. Upplifun þátttakenda af þjónustunni var jákvæð og reyndist starfsfólk Atvinnu- og virknimiðlunar þeim vel. Hindranir í atvinnuleit eru fjölmargar en helstu hindranir sem fram komu í þessari rannsókn voru menntun, bæði hátt menntunarstig og lágt menntunarstig, aldursfordómar, kynþáttarmisrétti, andleg veikindi og áfengisneysla. Niðurstöður þessarar rannsóknar samsvara niðurstöðum erlendra rannsókna. Flestum viðmælendum gekk vel að fóta sig á vinnumarkaði að vinnumarkaðsúrræðinu loknu. Þátttaka þeirra gaf þeim reynslu, aukinn félagsauð, reyndist valdeflandi og stuðlaði að bættri líðan. Það sem hjálpaði einna helst í vinnumarkaðsúrræðinu var tækifærið að komast inn þ.e. inn á vinnumarkað sem hafði reynst þeim erfitt. Annað sem hjálpaði var hve snöggt ferlið var í kjölfar þess að þátttakendur komust í samband við Atvinnu- og virknimiðlun. Þó kom í ljós að vinnumarkaðsúrræðið er ekki gallalaust, en helstu gallar þess voru tengdir verkferlum Reykjavíkurborgar en aðrir gallar sem fram komu getur Atvinnu- og virknimiðlun kippt í lag auðveldlega. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þó jákvæð áhrif vinnumarkaðsúrræðisins á andlega líðan og félaglega virkni þátttakenda, sem jókst til muna á meðan því stóð. Lykilorð: atvinnuleysi, fátækt, fjárhagsaðstoð, atvinnuúrræði, virkniúrræði","The aim of the study was to understand the experiences of individuals who received a temporary employment contract through vocational rehabilitation and the labor market resources of Atvinnu- og virknimiðlun. This particular labor market resource was available to individuals who received financial assistance or unemployment benefits and participants received a six-month temporary employment contract. The jobs were either designed for individuals from previous jobs, skills or education with in City of Reykjavík or at the participant's own choice within City of Reykjavík or in the public labor market. By exploring the experiences of those who have participated in the resource, it is possible to assess what is being done well and what can be improved. As well as investigating whether this had other effects, e.g. on the well-being and activity of the participants. The results of the study indicate that the services of Atvinnu- og virknimiðlun have made a difference in providing participants with the opportunity to enter the labor market. The participants' experience of the service was positive, and the staff of Atvinnu- and virknimiðlun proved to be good for them. Barriers to job search are numerous, the main barriers identified in this study were education, both high and low education levels, ageism, racial inequality, mental illness and alcohol consumption. The results of this study correspond to the results of previous reasearch in the field. Most of the participants managed to get a foothold in the labor market after the end of the labor market intervention. Their participation gave them experience, increased social capital, proved to be empowering and contributed to improved well-being. What helped the most in the labor market resource was the opportunity to enter the labor market, which had proved difficult for them. What also proved to be successful was how fast the process was after the participants got in touch with Atvinnu- and virknimiðlun. However, it turned out that the labor market resource is not without flaws, but its main flaws were related to the specific rules of financial assistance with City of Reykjavík, other flaws that emerged can be easily fixed by Atvinnu- og virknimiðlun. The main results of the study are the positive effects of the labor market resource on the mental well-being and social activity of the participants, which increased significantly during it. Keywords: unemployment, poverty, financial assistance, labor market recources, job search assistance."]},{"key":"dc:title","label":"Title","values":["„Ég þurfti bara tækifæri til að komast inn“ Upplifun einstaklinga af þjónustu Atvinnu- og virknimiðlunar og vinnumarkaðsaðgerðum Reykjavíkurborgar"]}]}],"canonical_facts":{"dc:contributor":["Háskóli Íslands"],"dc:creator":["Edda Laufey Bjarnadóttir 1995-"],"dc:date.accessioned":["2022-11-28T11:09:59Z"],"dc:date.available":["2022-11-28T11:09:59Z"],"dc:date.issued":["2022-11-28T11:10:00Z"],"dc:description.abstract":["Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun einstaklinga sem fengu tímabundinn ráðningarsamning í gegnum starfsendurhæfingar -og vinnumarkaðsúrræði Reykjavíkurborgar. Þetta tiltekna vinnumarkaðsúrrræði, Atvinnu- og virknimiðlun, var í boði fyrir einstaklinga sem fengu fjárhagsaðstoð til framfærslu eða atvinnuleysisbætur og fengu þátttakendur tímabundinn ráðningarsamning í sex mánuði. Störfin voru ýmist hönnuð fyrir einstaklingana út frá fyrri störfum, kunnáttu eða menntun og voru flest störfin innan Reykjavíkurborgar eða að eigin vali þátttakanda á almennum vinnumarkaði. Með því að fá að heyra upplifun þeirra sem tekið hafa þátt í úrræðinu er hægt að meta hvað er verið að gera vel og hvað má bæta ásamt því að kanna hvort þetta hafi haft önnur áhrif t.d á líðan og virkni þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að störf og þjónusta Atvinnu- og virknimiðlunar hafi skipt sköpum í að veita þátttakendum tækifæri til að komast inn á vinnumarkað. Upplifun þátttakenda af þjónustunni var jákvæð og reyndist starfsfólk Atvinnu- og virknimiðlunar þeim vel. Hindranir í atvinnuleit eru fjölmargar en helstu hindranir sem fram komu í þessari rannsókn voru menntun, bæði hátt menntunarstig og lágt menntunarstig, aldursfordómar, kynþáttarmisrétti, andleg veikindi og áfengisneysla. Niðurstöður þessarar rannsóknar samsvara niðurstöðum erlendra rannsókna. Flestum viðmælendum gekk vel að fóta sig á vinnumarkaði að vinnumarkaðsúrræðinu loknu. Þátttaka þeirra gaf þeim reynslu, aukinn félagsauð, reyndist valdeflandi og stuðlaði að bættri líðan. Það sem hjálpaði einna helst í vinnumarkaðsúrræðinu var tækifærið að komast inn þ.e. inn á vinnumarkað sem hafði reynst þeim erfitt. Annað sem hjálpaði var hve snöggt ferlið var í kjölfar þess að þátttakendur komust í samband við Atvinnu- og virknimiðlun. Þó kom í ljós að vinnumarkaðsúrræðið er ekki gallalaust, en helstu gallar þess voru tengdir verkferlum Reykjavíkurborgar en aðrir gallar sem fram komu getur Atvinnu- og virknimiðlun kippt í lag auðveldlega. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þó jákvæð áhrif vinnumarkaðsúrræðisins á andlega líðan og félaglega virkni þátttakenda, sem jókst til muna á meðan því stóð. Lykilorð: atvinnuleysi, fátækt, fjárhagsaðstoð, atvinnuúrræði, virkniúrræði","The aim of the study was to understand the experiences of individuals who received a temporary employment contract through vocational rehabilitation and the labor market resources of Atvinnu- og virknimiðlun. This particular labor market resource was available to individuals who received financial assistance or unemployment benefits and participants received a six-month temporary employment contract. The jobs were either designed for individuals from previous jobs, skills or education with in City of Reykjavík or at the participant's own choice within City of Reykjavík or in the public labor market. By exploring the experiences of those who have participated in the resource, it is possible to assess what is being done well and what can be improved. As well as investigating whether this had other effects, e.g. on the well-being and activity of the participants. The results of the study indicate that the services of Atvinnu- og virknimiðlun have made a difference in providing participants with the opportunity to enter the labor market. The participants' experience of the service was positive, and the staff of Atvinnu- and virknimiðlun proved to be good for them. Barriers to job search are numerous, the main barriers identified in this study were education, both high and low education levels, ageism, racial inequality, mental illness and alcohol consumption. The results of this study correspond to the results of previous reasearch in the field. Most of the participants managed to get a foothold in the labor market after the end of the labor market intervention. Their participation gave them experience, increased social capital, proved to be empowering and contributed to improved well-being. What helped the most in the labor market resource was the opportunity to enter the labor market, which had proved difficult for them. What also proved to be successful was how fast the process was after the participants got in touch with Atvinnu- and virknimiðlun. However, it turned out that the labor market resource is not without flaws, but its main flaws were related to the specific rules of financial assistance with City of Reykjavík, other flaws that emerged can be easily fixed by Atvinnu- og virknimiðlun. The main results of the study are the positive effects of the labor market resource on the mental well-being and social activity of the participants, which increased significantly during it. Keywords: unemployment, poverty, financial assistance, labor market recources, job search assistance."],"dc:identifier.uri":["http://hdl.handle.net/1946/43031"],"dc:language.iso":["is"],"dc:subject":["Félagsráðgjöf","Starfsendurhæfing","Vinnumarkaður"],"dc:title":["„Ég þurfti bara tækifæri til að komast inn“ Upplifun einstaklinga af þjónustu Atvinnu- og virknimiðlunar og vinnumarkaðsaðgerðum Reykjavíkurborgar"],"dc:type":["Thesis"]},"updated_at":"2026-07-27T21:43:28Z"}