Back to results

University of Iceland

„Um leið og þú byrjar að slaka á þá fara hlutirnir aftur í sama far“ : Reynsla bókara og viðhorf til vinnslu við jafnlaunavottun

Abstract

dc:description.abstract

Tilgangur þessara rannsóknar er að skyggnast inn í störf bókara og þeirra hlutverk við innleiðingu jafnlaunavottunar. Send var út fyrirspurn til starfsmanna í bókhaldi og óskað var eftir viðtölum við bókara sem hafa reynslu við innleiðingu jafnlaunavottunar. Þrjú svör bárust rannsakanda og er einn viðmælandi starfsmaður innan fyrirtækis og hinir tveir viðmælendurnir eru verktakar sem sjá um bókhaldsþjónustu fyrir önnur fyrirtæki. Kveikjan að viðfangsefni rannsóknarinnar voru aðrar rannsóknir sem gerðar hafa verið um jafnlaunavottun en þær fjalla um upplifun æðstu stjórnenda fyrirtækja. Þess vegna er það að mati rannsakanda að þörf sé á að kanna önnur sjónarmið við innleiðingu jafnlaunavottunar og því var ákveðið að taka eigindleg viðtöl við starfsmenn í bókhaldi. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós á að bókarar hafa séð um ólík verkefni við gerð jafnlaunavottunar þar á meðal starfaflokkun, skjölun á launaupplýsingum, útreikningar á launum og að veita ráðgjöf varðandi ferlið. Kom þá í ljós að eðli reksturs og stærð fyrirtækis hefur veruleg áhrif á vinnuframlag bókara. Má þar nefna margvíslegir launaliðir, há starfsmannavelta og ófullnægjandi fyrirliggjandi gögn sem tefja ferlið og eykur vinnuálag. Þrátt fyrir mikla handavinnu sem krefst margra vinnustunda þá er ferlið þess virði fyrir ávinningana sem jafnlaunavottun ber með sér. Að mati viðmælendanna hefur jafnlaunavottun breytt verkferlum til hins betra með þeim hætti að betur sé fylgst með öllum starfsmönnum fyrirtækisins og dregur úr þeirri hættu að einhverjir sitji eftir þegar kemur að jafnrétti í launamálum. Einnig kom í ljós ábendingar um hvernig hægt sé að þróa ferlið áfram til einföldunar. Með því að setja kröfur á skipulagsheildir að halda utan um viðeigandi upplýsingar sem þörf er á fyrir jafnlaunavottun þá geti það stytt vinnu bókara til mikillar munar. Einnig sé hægt að nýta þau launakerfi sem eru nú þegar til staðar sem bjóða upp á launagreiningar þá sé hægt að nýta þá betur við næstu jafnlaunavottun og auki þar með sjálfvirkni við gerð jafnlaunavottunar. Að lokum kom í ljós að bókarar starfandi sem verktakar hafa áhuga á því að fylgja ferlinu alveg til enda og fá tækifæri til þess að miðla áfram þekkingu þeirra sem bókarar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Atladóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40976
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40976

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Atladóttir 1997-. „Um leið og þú byrjar að slaka á þá fara hlutirnir aftur í sama far“ : Reynsla bókara og viðhorf til vinnslu við jafnlaunavottun. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40976