Back to results

University of Iceland

Staðarhólskirkja 1200–1700: Auður, tekjur og búskapur

Abstract

dc:description.abstract

Þessi rannsókn er hluti af verkefninu Ritmenning íslenskra miðalda sem ætlað er að varpa ljósi á tiltekna staði á Íslandi þar sem ritmenning blómstraði á miðöldum. Eftirfarandi ritgerð er hluti af undirverkefninu sem ber heitið Staðarhóll: Höfuðból í minjum, sögu og sagnaritun. Meginmarkmið ritgerðarinnar innan þessa verkefnis og RÍM er að svara eftirfarandi spurningum: 1. Tekjur staðarins. Efnahagslegar forsendur kirkjustarfs voru annars vegar tíund og tollar og hins vegar eignir og ítök. Athugun á máldögum og öðrum skjölum staðarins mun leiða í ljós hverjar tekjur Staðarhóls voru og hvernig þær þróuðust í aldanna rás. 2. Rekstur staðar, búskapur. Hvernig var búskap og búrekstri háttað á Staðarhóli í gegnum aldirnar? Samanburður á miðaldamáldögum og Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns hefur leitt í ljós að búnaðarumsvif margra gamalla stórbýla drógust umtalsvert saman á 16. og 17. öld. Hvernig var staðan á Staðarhóli? Þessar spurningar móta viðfangsefni ritgerðarinnar, en ritgerðin tekur fyrir eignarhald kirkjunnar og skipulag hennar, þróun helstu tekjustofna jarðargóssa frá miðöldum fram á árnýöld, hverskonar tekjur en líka hversu miklar þær voru af eignum Staðarhólskirkju, búskap í Staðarhólsdal og annarsstaðar þar sem Staðarhólskirkja hafði ítök. Með því að fjalla um samhengi tekjustofna og búskapar í nærumhverfi Staðarhóls má draga fram séreinkenni höfuðbólsins Staðarhóls.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Emil Gunnlaugsson 1996-
Contributors dc:contributor
  • Háskóli Íslands

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40348
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40348

Chain of custody

source
Harvested from
University of Iceland
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Emil Gunnlaugsson 1996-. Staðarhólskirkja 1200–1700: Auður, tekjur og búskapur. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40348